Gott stig úr vesturbænum

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Óli Baldur Bjarnason tryggði Grindavik mikilvægt stig með frábæru marki á 78. mínútu í kvöld Byrjunarlið Grindavíkur var nær óbreytt frá leiknum gegn Stjörnunni. Bogi Rafn meiddist í þeim leik og var því ekki með í dag og ekki miklar líkur að hann spili meira í haust. Jamie McCunnie kom aftur í liðið fyrir hans stað. Óskar var sem fyrr …

Uppskeruhátíð 3. og 4. flokks

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Lokahóf 3. og 4. flokks stúlkna og drengja var haldið með pompi og pragt í gær.   Veittar voru viðurkenningar, spilað bingó og þá var glæsilegt veisluhlaðborð sem foreldrar krakkanna höfðu lagt til. Knattspyrnusumarið 2011 gekk ljómandi vel og voru leikmennirnir félaginu og Grindavík til sóma. Formaður unglingaráðs fór í stórum dráttum yfir starfsemi sumarsins og formaður knattspyrnudeildar fór yfir …

30 ára afmælislokhóf fótboltans – Haldið í Lava-sal Bláa lónsins

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Hið árlega lokahóf fótboltans verður haldið laugardaginn 1. október nk. með pompi og pragt í Lava-sal Bláa lónsins, en lokaumferð úrvalsdeildar karla fer fram fyrr um daginn.  Í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá því fyrsta lokahófið var haldið í Festi 1981 verður ýmislegt gert til þess að rifja upp gamla og góða tíma. Lokahóf fótboltans hefur verið …

Íþróttaskóli Ungmannafélags Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Íþróttaskóli Ungmannafélags Grindavíkur fyrir börn fædd 2006-2007 Ungmannafélag Grindavíkur mun standa fyrir íþróttaskóla barna í íþróttahúsinu fyrir börn fædd 2006-2007. Námskeiðið byrjar sunnudaginn 25.september 2011 og verður í 6 skipti og eru frá kl 10:00-10:45. Námskeiðið kostar 2500.- kr og skráning fer fram í húsi UMFG (við hlið grunnskólans) á mánudaginn 18.sept og fimmtudaginn 22.sept frá kl 14:00-18:00. Einnig er …

Iðkendum fjölgar hjá sunddeild UMFG

Ungmennafélag Grindavíkur Sund

Jódís Erna tekur við mætingabikarnum  fyrir bestu mætingu í ágústmánuði. Starfssemi sunddeildarinnar fer vel af stað og það er fjölgun í iðkendahóp. Þrekæfingar eru alla virka daga hjá A hóp á undan sundæfingum.  Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingunni í dag þar sem krakkarnir tóku vel á því.

Uppskeruhátíð 4.flokks og 3.flokks karla og kvenna

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Uppskeruhátíð 4.flokks og 3.flokks karla og kvenna verður haldin miðvikudaginn 14.september kl.17.00 á sal Grunnskóla Grindavíkur.   Auk verðlaunaafhendingar verður bingó með veglegum vinningum.   Hið fræga kökuhlaðborð á sínum stað en undanfarin ár hafa flottustu foreldrará Íslandi (Grindavíkurforeldrarnir) séð um að baka og lagst á eitt við aðstútfylla sameiginlegt hlaðborð af kræsingum.  

Taekwondo æfingar hefjast í dag

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Taekwondo æfingar hefjast í dag, þriðjudaginn 13.september í litla sal í íþróttahúsinu kl: 15:00   1.-2. bekkur kl: 15:40   3.-7. bekkur kl: 16:30   8.bekkur og eldri (fullorðnir velkomnir)   Allir velkomnir að koma að prófa.

Taekwondo æfingar hefjast í dag

Ungmennafélag Grindavíkur Taekwondo

Taekwondo æfingar hefjast í dag, þriðjudaginn 13.september í litla sal í íþróttahúsinu kl: 15:00   1.-2. bekkur kl: 15:40   3.-7. bekkur kl: 16:30   8.bekkur og eldri (fullorðnir velkomnir)   Allir velkomnir að koma að prófa.

Grindavík 2 – Stjarnan 2

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík og Stjarnan skildu jöfn í skemmtilegum leik sem fór fram í dag. Grindavík stillti upp “íslensku” liði í dag með Óskar í markinu. Ólafur þjálfari og Orri sem hafsentar og Jobbi og Alexander bakverðir.  Fyrir framan vörnina voru Matthías og Bogi Rafn.  Magnús fremstur með Jóhann, Óla Baldur og Scotty fyrir aftan hann.  Þrælflott lið og voru mun betri …

Grindavík – Stjarnan á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík tekur á móti Stjörnunni á morgun klukkan 17:00 Eftir landsleikjafrí er boltinn í Pepsi deild karla loksins farinn að rúlla aftur.  Ef einhver skildi hafa gleymt því þá er Grindavík í neðri hluta deildarinnar en 6 stigum frá fallsæti, Stjarnan hinsvegar í baráttu um Evrópusæti. Stjarnan hefur tekið flest sín stig á heimavelli og unnið tvo leiki á útivelli …