Grindavík – Stjarnan á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík tekur á móti Stjörnunni á morgun klukkan 17:00

Eftir landsleikjafrí er boltinn í Pepsi deild karla loksins farinn að rúlla aftur.  Ef einhver skildi hafa gleymt því þá er Grindavík í neðri hluta deildarinnar en 6 stigum frá fallsæti, Stjarnan hinsvegar í baráttu um Evrópusæti.

Stjarnan hefur tekið flest sín stig á heimavelli og unnið tvo leiki á útivelli sem rímar vel við tvo heimasigra hjá Grindavík.  Í innbyrðis viðureignum á Grindavíkurvelli hafa okkar menn yfirhöndina síðustu ár.  Í fyrra skildu liðin jöfn 1-1 þar sem Gjorgi Manevski jafnaði leikinn fyrir Grindavík á 89. mínútu.

2009 var hér hörkuleikur sem endaði 4-2 fyrir Grindavík með mörkum frá Óla Baldri, Zoran Stamenic, Scotty og Ondo.
2007 mættust liðin hér í 1.deildinni þar sem Orri og Andri Steinn skoruðu mörkin í 2-1 sigri.

Fín veðurspá er fyrir morgundaginn, liðin geta bæði spilað skemmtilegan bolta og Grindavíkurliðið í baráttu um að halda sér uppi.  Allt eru þetta fínar ástæður fyrir að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á okkar mönnum. 

Þess má geta að serbneskufræðingurinn Garðar Örn Hinriksson dæmir sinn fyrsta leik í efstu deild eftir langt frí þegar hann dæmir leik Grindavíkur og Stjörnunnar á morgun ásamt Frosta Viðar Gunnarssyni og Sverri Gunnari Pálmasyni.