Synt verður frá kl 17 í dag til kl 14 á sunnudag Krakkarnir fengu góðar viðtökur hjá bæjarbúum þegar þau gengu í hús og söfnuðu áheitum. Það er góð stemmning í hópnum sem stefnir á að synda 100km um helgina Fjölmiðlar hafa sýnt málinu áhuga og flutt fréttir af því í dag og undanfarna daga.
Krakkarnir hafa synt 17 km núna kl 20
Starfsfólk sundlaugarinnar gefur 100 kr á hvern syntan km og hvetur aðrar stofnanir og fyrirtæki að gera slíkt hið sama. Krakkarnir hafa synt 17 km og gestir 2,7 km
Kl 22 voru krakkarnir búin að synda 27 km
Frábær gangur í sundinu 27 km og 3,7 km hjá gestum.
37,5 km kl 23
Nú kl 23 hafa krakkarnir synt 37,5 km og gestir 3,9 km
Stefnan sett á 100 km í sundmaraþoni
Synt verður á vöktum alla helgina. Það verður mikið um að vera hjá sundfólkinu okkar um helgina, A og B hópar munu synda á vöktum og gista í kjallara sundlaugarinnar. Yngri iðkendur synda að deginum til. Eldri krakkarnir standa fyrir vöfflusölu í anddyri sundlaugarinnar á laugardag kl 11-17 og sunnudag kl 11-14 til fjáröflunar fyrir æfingabúðir erlendis næsta sumar.
Kvennalandsliðið æfði á Grindavíkurvelli
„Kvennalandsliðið æfði í gær í Grindavík og voru móttökurnar að hætti heimamanna, höfðinglegar. Eftir æfingu voru stelpurnar allar leystar út með kraftmikilli gjöf, flösku af Lýsi, sem vafalaust á eftir að koma sér vel fyrir leikinn gegn Belgíu í kvöld,“ segir á heimasíðu KSÍ í dag. Leikurinn á Laugardalsvelli hefst kl. 19:30 í kvöld en miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. …
Grindavík – Njarðvík í dag
Grindavík tekur á móti Njarðvík í kvöld klukkan 19:15 Leikurinn er liður í Reykjanesmótinu sem fram fer um þessar mundir. Fyrsti leikur Grindavíkur í mótinu var gegn Stjörnunni 15. sept sem endaði með nokkuð stórum sigri Stjörnunnar 80-56. Þetta er því upplagt tækifæri á að sjá nýju leikmennina þá Jóhann Ólafsson og Sigurð Gunnar Þorsteinsson auk yngri leikmanna sem fá …
Töpuð stig
Grindavík tapaði sínum fyrsta leik í átta leikjum í dag þegar FH komu og unnu 3-1 Okkar menn voru langt frá því að sýna sitt rétta andlit í þessum leik. FH hefur oft komið hingað og sýnt mun betri leik en þeir virtust ekki þurfa að gera mikið til að vinna slappa Grindvíkinga. Fyrsta mark FH skoraði Atli Guðnason þegar …
Grindavík – FH í dag
Leikur dagsins á Grindavíkurvelli er Grindavík-FH í 20. umferð Pepsi deild karla. Nær Grindavík áttunda leik sínum í sumar án taps og bætir þar með félagsmetið? Eitt eða þrjú stig eru allavega mjög mikilvæg sem endra nær. Stutt er niður í Fram en styttra í 7. sætið þar sem Keflavík, Þór og Breiðablik eru öll bara með eitt stig meira. …
Leik frestað
Leik Grindavíkur og FH sem átti að fara fram í dag klukkan 17:00 hefur verið frestað. Þess í stað munu liðin mætast á Grindavíkurvelli á morgun, mánudaginn 19.sept, klukkan 17:00









