Tveir Íslandsmeistarar í júdó í U20

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar stóðu sig með prýði á Íslandsmóti U20 í júdó um helgina og eignuðust tvo Íslandsmeistara. Grindvíkingar áttu fimm fulltrúa á mótinu; Guðjón Sveinsson, Gunnar Marel Ólafsson, Björn Lúkas Haraldsson, Sigurpáll Albertsson og Daniel Víðar Hólm, og komust þeir allir á verðlaunapall. Þeir kepptu allir í aldursflokkinum 17-19 ára.   Þeir Sigurpáll og Björn Lúkas unnu sína flokka með miklum yfirburðum …

Tvei sigrar um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Meistaraflokkur kvenna lék tvo leiki um helgina og tóku á móti sigurverðlaunum. Fyrri leikurinn var í gær þegar þær tóku á móti Skallagrím sem þær unnu örugglega 71-24 Eftir leikinn tóku þær við bikar enda unnu þær deildina örugglega, 14 sigrar í 15 leikjum. Í dag tóku þær á móti KFÍ og var hann öllu jafnari en lokatölur urðu 60-51 Glæsilegur …

Grindavík 4 – Fylkir 1

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík lagði Fylki 4-1 núna rétt í þessu í Lengjubikarnum. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöll og var liður í 5.umferð Lengjubikarsins.  Grindavík er smá saman að ná til baka sínum sterkasta hóp og voru m.a. Ólafur Örn Bjarnason, Scott Ramsay og Alexander Magnússon allir í byrjunarliðinu í dag en enginn þeirra spilaði síðasta leik. Mikil bæting var á liðinu í …

Tveir Íslandsmeistaratitlar

Ungmennafélag GrindavíkurJudó

Grindvíkingar stóðu sig með prýði á Íslandsmóti U20 í júdó og eignuðust tvo Íslandsmeistaratitla til viðbótar. Mótið fór fram laugardaginn 17. mars og áttu Grindvíkingar 5 fulltrúa á mótinu, þeir Guðjón Sveinsson, Gunnar Marel Ólafsson, Björn Lúkas Haraldsson, Sigurpáll Albertsson og Daniel Víðar Hólm, og komust þeir allir á verðlaunapall. Þeir kepptu allir í aldursflokkinum 17-19 ára. Þeir Sigurpáll og Björn …

Annar bikar á loft í dag

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Það er skammt stórra högga á mili í bikarlyftingum hér í Grindavík.  Í dag eftir leikinn við Skallagrím tekur meistaraflokkur kvenna við bikar fyrir sigur í 1.deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 17:00 í dag og fer fram hér í Grindavík.  Grindavík er í 1.sæti með 24 stig en KFÍ í öðru með 20 stig.   Þessi lið mun væntanlega fara …

Bikarinn fór á loft þrátt fyrir tapið

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík steinlá fyrir Snæfelli í Röstinni í gærkvöldi 89-101. En Grindavík hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og Páll Axel Vilbergsson fyrirliði tók á móti titlinum í leikslok. Grindavík lék án Giordon Watson og munaði um minna.   „Við vorum bara skítlélegir í dag. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði fyrirliði Grindavíkur, Páll Axel Vilbergsson, við Vísi allt annað en …

Stakkavík, Vísir og Þorbjörn styðja við bakið á körfuboltanum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Körfuknattleiksdeild UMFG skrifaði undir nýja samstarfssamninga við grindvísku útgerðarfyrirtækin Stakkavík, Vísi og Þorbjörn í hálfleik á leik Grindavíkur og Snæfells í gærkvöldi. Þessir samningar auðvelda mjög starf körfuknattleiksdeildarinnar og er vart hægt að lýsa í orðum hversu þakklátir forsvarsmenn körfuknattleiksdeildarinnar eru þessum fyrirtækjum! Á myndinni má sjá þegar skrifað var undir en þarna eru þeir Eiríkur Tómasson frá Þorbirni, Magnús Andri …

Frábærir styrktaraðilar!!!

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Eins og fram kom í síðustu pistlum var skrifað undir nýja styrktarsamninga við helstu bakhjarla körfuknattleiksdeildarinnar, Stakkavík, Vísi og Þorbjörn.   Þessir samningar auðvelda mjög starf körfuknattleiksdeildarinnar og er vart hægt að lýsa í orðum hversu þakklátir forsvarsmenn körfuknattleiksdeildarinnar eru þessum fyrirtækjum!  Á myndinni má sjá þegar skrifað var undir en þarna eru þeir Eiríkur Tómasson frá Þorbirni, Magnús Andri …

Enn einn sigurinn hjá stelpunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstúlkur sigruðu Laugdæli í B. deild kvenna í körfubolta í fyrrakvöld. Leikurinn fór fram á Laugarvatni og var sigurinn í stærri kantinum, lokatölur 31-90, Grindavík í vil. Stelpurnar léku afar vel og var sigurinn aldrei í hættu eins og lokatölurnar gefa til kynna. Grimm vörn og hraður sóknaleikur var það sem að skilaði sigrinum. Laugdælir reyndu ýmis varnarafbrigði en Grindavíkurstelpurnar …

Afmælisblað Golfklúbbs Grindavíkur kemur út í apríl

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Golfklúbbur Grindavíkur mun í apríl gefa út afmælisblað í tilefni af 30 ára afmælinu. Á þessum tímamótum mun klúbburinn taka í notkun nýjan 18 holu golfvöll ásamt nýju og glæsilegu klúbbhúsi. Þessar framkvæmdir krefjast mikils fjármagns og leitar því golfklúbburinn til félagsmanna og velunnara hans eftir stuðningi.  Hægt er að skrá nafn sitt sem styrktaraðila í blaðið gegn 5000 króna …