Komnir í undanúrslit eftir sigur á flottu liði Njarðvíkinga

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík vann Njarðvík í kvöld öðru sinni og þar með rimmu liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar, 87-76.   Þessi munur gefur kannski ekki alveg rétta mynd því liðin voru jöfn eftir 3 leikhluta en þá kom væntanlega reynsla og okkar breidd til sögunnar og við sigldum fram úr í lokaleikhlutanum og erum þ.a.l. loksins komnir í gegnum 8-liða …

Grindavík 4 – Höttur 1

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík tók á móti Hetti í sjöundu umferð Lengjubikarsins í Reykjaneshöll í dag. Gömul keppa úr Grindavík, Eysteinn Húni Hauksson, stýrir liði Hattar sem fór upp um deild síðasta sumar og var þetta fyrsti leikur sem Eysteinn stýrir á móti sínu gamla félagi. Leikurinn var síðasti hjá Grindavík í Lengjubikarnum en nokkur stígandi hefur verið í síðustu leikjum, unnu Val …

Vel gert strákar! Sannfærandi sigur í fyrsta leik

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík hafði betur gegn Njarðvík 94-67 í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik í Grindavík í gærkvöld og eins og tölurnar bera með sér var sigurinn sannfærandi og sanngjarn. Grindavík hafði fjórtán stiga forystu í hálfleik, 46-32, og hafði yfirburði á flestum sviðum íþróttarinnar frá upphafi til enda.   Ónefndur fyrrverandi leikmaður körfuboltaliðs Njarðvíkur …

Helgi Jónas: Allt á uppleið

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

„Við gerðum það sem lagt var upp með og spiluðum mjög vel í kvöld, sérstaklega í vörninni. Við eigum að vera með sterkara lið – staðan í deildinni sýnir það. En menn verða mæta tilbúnir til leiks í úrslitakeppninni og gera það sem fyrir þá er lagt. Það gerðum við í kvöld,“ sagði Helgi Jónas Guðfinsson, þjálfari Grindavíkur, við Vísi. …

Aldrei spurning

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík hélt áfram þar sem frá var horfið í Njarðvík um daginn og rúllaði drengjum Frikka og Einars hreinlega upp! Það var allan tímann ljóst í hvað stefndi, slíkir voru yfirburðir Grindvíkinga.  Nokkuð ljóst að ef Kanar Njarðvíkinga fara ekki að gera eitthvað verulega róttækt, að þá endar þessi sería á sunnudaginn í Njarðvík.  Hvorki Camerion Echols né Travis Holmes …

Páskafrí í Taekwondo

Ungmennafélag GrindavíkurTaekwondo

  Páskafrí í Taekwondo Eftir æfinguna í dag fimmtudag 29.mars er komið páskafrí á taekwondo æfingum. Æfingar hefjast aftur eftir stundartöflu fimmtudaginn 12. apríl. Gleðilega páska  

Styrktarmót fyrir skálabyggingu á laugardaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Laugardaginn 31. mars verður opið mót á Hústatóftavelli. Mótið er styrktarmót þar sem allur ágóði rennur í endurbætur og byggingu nýja golfskála okkar Grindvíkinga. Hér er fyrst og fremst tækifæri fyrir kylfinga að leika á sumarflötum í mars við frábærar aðstæður. Leikið er með punktafyrirkommulagi. Verðlaun fyrir 3 efstu sætin með forgjöf.  Verðlaunum er stillt í hóf þar sem megintilgangur með …

Grindavíkurstelpur í úrvalsdeild!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur tryggðu sér sæti í úrvalsdeild kvenna í körfubolta eftir 3ja stiga sigur á KFÍ, 50-47, í æsispennandi og spennuþrungnum úrslitaleik liðanna. Mikil fagnaðarlæti brutust út eftir að sigurinn var í höfn. Grindavík var yfir 18-15 eftir fyrsta leikhluta og hafði 3ja stiga forskot í hálfleik, 28-25. KFÍ komst reyndar yfir um tíma í öðrum leikhluta. En þegar 5 mínútur …

Kvennaliðið í efstu deild og úrslitakeppni karla hefst annað kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavíkurstelpurnar tryggðu sér farseðilinn með sigri í oddaleik á móti KFÍ í kvöld.  Leikurinn var hörku spennandi en okkar stelpur náðu að knýa sigurinn fram og farseðilinn í deild hinna bestu að ári!   Lokatölur urðu 50-47.  Glæsilegt stelpur og innilega til hamingju! Á morgun hefst svo úrslitakeppni Iceland Express deildar karla en þar munum við deildarmeistararnir, etja kappi við …

Grindavík upp um deild

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavíkurstelpur tryggðu sér sæti í úrvalsdeild kvenna í körfubolta eftir 3ja stiga sigur á KFÍ, 50-47, í æsispennandi og spennuþrungnum úrslitaleik liðanna. Mikil fagnaðarlæti brutust út eftir að sigurinn var í höfn. Grindavík var yfir 18-15 eftir fyrsta leikhluta og hafði 3ja stiga forskot í hálfleik, 28-25. KFÍ komst reyndar yfir um tíma í öðrum leikhluta. En þegar 5 mínútur …