Nágrannaslagur af bestu gerð

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Það verður nágrannaslagur af  bestu gerð þegar Grindavík sækir Keflavík heim í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld kl. 19:15. Grindavík leikur án Ólafs Arnar  Bjarnasonar fyrirliða sem er í leikbanni en teflir fram nýjum skoskum leikmanni, Ian Williamson. Keflavík er í 7. sæti með 15 stig en Grindavík í neðsta sæti 6 stig og því mikið í húfi fyrir …

Grindavík sækir Keflavík heim

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík sækir granna sína í Keflavík í Pepsideild karla í knattspyrnu í kvöld kl. 19:15. Búast má við hörku leik, Keflavík er með 15 stig en Grindavík á botninum með 6. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenn á völlinn. Keflavík burstaði fyrri leik liðanna í sumar 4-0 í Grindavík.

Margrét kvaddi með sigurmarki

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur skelltu BÍ/Bolungarvík á Torfnesvelli á Ísafirði um helgina 1-0 í 1. deild kvenna. Margrét Albertsdóttir skoraði sigurmark Grindavíkur á 78. mínútu en þetta var síðasti leikur hennar í liðinu en hún farin út að nýju til Bandaríkjanna þar sem hún er í námi. Grindavík hefur smám saman verið að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun. Þær eru komnar upp …

Grátleg tap gegn Keflavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík tapaði fyrir grönnum sínum í Keflavík 2-1 í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Keflavíkingar skoruðu sigurmarkið í blálokin og Grindavík enn í neðsta sæti með 6 stig. Þar fyrir ofan kemur Selfoss með 8 og svo Fram með 12 en Grindavík tekur á móti Fram í næstu umferð.   Óskar Pétursson hélt Grindavík á floti í fyrri hálfleik …

Páll Axel farinn til Skallagríms

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Íslandsmeistara Grindavíkur, hefur ákveðið á gamalsaldri að færa sig til Borganes þar sem hann mun spila með nýliðunum Skallagrími í efstu deild á næsta ári. Eins og allir vita er Páll Axel einn besti leikmaður landsins og m.a. í tíunda sæti yfir flest stig skoruð allra Íslendinga en þeir sem eru fyrir ofan í röðinni hafa …

Stelpubúðir Helenu Sverrisdóttir

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Helena Sverrisdóttir mun standa fyrir æfingabúðum fyrir stelpur á aldrinum 11-16 ára í samstarfi við Hauka. Búðirnar hefjast laugardagsmorgunin 11.ágúst og lýkur seinnipartinn á sunnudeginum en boðið verður upp á gistingu og kvöldvöku. Skráningar eiga að berast á hsverrisdottir@yahoo.com eða í síma 778-6822.

Paxel kveður

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, hefur Páll Axel Vilbergsson, Paxel, ákveðið að söðla um og skipta um félag. Skallagrímur datt í lukkupottinn en Paxel hefur áður gert garðinn frægan í nesinu eins og hann kallar staðinn, n.t. seinni part tímabilsins 1997-1998.  Ég man eftir því þegar hann mætti með Borgnesingum og vann okkur næstum því einn en það …

Nágrannaslagur í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Í kvöld fer fram leikur Grindavíkur og Keflavík á Nettó vellinum og hefst hann klukkan 19:15 Liðin hafa mæst tvisvar í sumar og sýndi Grindavíkurliðið tvær gjörólíkar hliðar í leikjunum.  Leikurinn er í deildinni hér heima þann 10.maí var afleiddur sem endaði með 4-0 sigri Keflavíkur. Bikarleikurinn 6. júní var hinsvegar á allt öðrum nótum.  Liðið sýndi þar góða baráttu …

BÍ/Bolungarvík 0 – Grindavík 1

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík klifrar upp deildina, 1.deild – riðil B, með góðum sigri á Torfnesvelli.  BÍ/Bolungarvík tók á móti Grindavík á laugardaginn og sigraði Grindavík leikinn 1-0 í tíundu umferð mótsins.  Hægt er að sjá myndband frá leiknum á vef bb.is  Ferðalögin virðast þjappa liðinu saman því leikur á hinum enda landsins, gegn Völsung á Húsavík, endaði einnig með sigri Grindavíkur í …

Keflavík 2 – Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík missti af stigi undir lok leiks þegar Keflavík tryggði sér sigurinn á 88. mínútu í þrettándu umferð Pepsi deild karla í kvöld. Bæði Ólafur Örn og Alexander voru fjarverandi í kvöld ásamt því að Pape og Ameobi voru á bekknum.  Byrjunarliðið var þannig skipað:Óskar, Eklund, Ondo, Björn Berg, Ray, Matthías, Hafþór, Markó, Scotty, Magnús og Iain Williamson í sínum …