Það verður oddaleikur
Eftir tap í kvöld er ljóst að það þarf oddaleik til að skera úr hverjir mæta KR í úrslitum þetta árið. Leikurinn í kvöld var jafn frá fyrstu mínútu og allt þar til 2 mínútur voru til leiksloka þegar heimamenn juku við forskot og endaði leikurinn með sigri Njarðvík 77-68 Til að gera langa sögu stutta þá átti Grindavík slakan …
Grindavík 89 – Njarðvík 73
Grindavík er komið með yfirhöndina í einvígi Grindavíkur og Njarðvík í 4 liða úrslitum Dominosdeild karla. Liðið er því einum sigri frá því að komast í úrslitaviðureignina þriðja árið í röð. Lokatölur voru 89-73 þar sem Grindvík var megin hluta af leiknum með þægilegt 8-12 stiga forskot. Staðan í hálfleik var 43-35 sem var einkennilegt því maður hafði á tilfinningunni …
Grindavík – Njarðvík – Leikur 3
Þriðji leikur Grindavíkur og Njarðvík fer fram í kvöld. Athugið breyttan leiktíma en leikurinn byrjar klukkan 20:00 Allir alvöru körfuboltaunnendur vita að þetta einvígi er æsispennandi og staðan 1-1. Grindavík tapaði síðasta heimaleik sínum og strákarnir ætla ekki að láta það gerast aftur. Njarðvíkingar ætla að fjölmenna í Grindavík þannig að það þarf að taka á því ef við ætlum …
Golfmót til styrktar mfl kvenna í knattspyrnu
Laugardaginn 26.apríl fer fram styrktarmót fyrir meistaraflokk kvenna í knattspyrnu á stór glæsilegum 18 holu Húsatóftavelli. Það er Hérastubbur bakari sem heldur mótið sem verður með Texas Scramble fyrirkomulagi. Glæsileg verðlaun eru í boði og hvetjum við alla golfara að skrá sig og styðja stelpurnar í leiðinni. Skráning er á golf.is
Svona á að gera þetta!
Grindavík jafnaði einvígið við Njarðvík 1-1 eftir öruggan sigur í Ljónagryfju þeirra Njarðvíkinga í undanúrslitarimmu liðanna í körfubolta karla. Lokatölur 95-73 Grindavík í vil. Liðin mætast að nýju næsta föstudag í Röstinni. Það var snemma ljóst að Grindvíkingar ætluðu ekki að gefa tommu eftir. Þeir byrjuðu með flugeldasýningu og náðu 12 stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta. Eftirleikurinn var í sjálfu …
Hópleikur
Staðan í hópleiknum sem getraunastarf knattspyrnudeildar stendur fyrir er hnífjöfn þar sem Steve og Co og Charlies United eru bæði með 67 stig. Fjögur lið eru í 3-6 sæti. Sæti Tipparar Vika 1 Vika 2 Vika 3 Vika 4 Vika 5 Vika 6 Vika 7 Vika 8 Vika 9 Alls mínus 2 Lélegustuvikur 1-2 Steve og Co. 9 9 9 …
1-1 í einvíginu
Grindavík sigraði Njarðvík örugglega í öðrum leik liðanna í 4 liða úrslitum í gærkveldi. Allt frá því að strákarnir byrjuðu upphitun fyrir leikinn sá maður á þeim að þeir ætluðu að landa sigri. Sem þeir sýndu strax frá upphafsmínútunni því það var aldrei spurning hvoru meginn sigurinn færi. Frábær varnarleikur, mikil barátta, flæði í sóknarleik, skot fyrir utan loksins að …
Grindavík Íslandsmeistari í minni bolta
Um helgina fór fram lokakeppnin í Íslandsmótinu í minni bolta stúlkna í körfubolta. Spilað var í Grindavík og eins og svo oft í yngri flokkum kvenna þá var síðasti leikurinn og úrslitaleikurinn á milli nágrannaliðanna Grindavíkur og Keflavíkur. Grindavík lagði Keflavík að velli og eru því Íslandsmeistarar! Við óskum stelpunum og þjálfaranum Ellert Magnússyni til hamingju með titilinn. Mynd: …
Leikur 2
Í kvöld klukkan 19:15 fer annar leikur Grindavíkur og Njarðví fram í undanúrslitum Dominosdeildar. Leikurinn fer fram í Njarðvík. Njarðvík er komið í 1-0 í einvíginu og því þurfa okkar menn sigur að halda í kvöld til að fá aftur jafnvægi í einvígið. Grindvíkingar eru hvattir til að mæta og styðja strákanna kröftulega. Mæta þarf tímanlega því búast má við …









