Grindavík tekur á móti Snæfell í 16. umferð Dominsdeild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 Snæfell sigraði Hauka í síðustu umferð og eru í 8 sæti í deildinni. Njarðvík stal 3 sætinu af Grindavík í gær þannig að Grindavík þarf sigur í kvöld til að halda sætinu mikilvæga sem skilar heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Hættulegustu menn gestanna eru auk erlenda leikmannsins þeir …
Grindavík í höllina
Grindavík er komið í bikarúrslitin í fjórða sinn á fimm árum eftir sigur á Þór í kvöld. Lokatölur voru 93-84 Fyrri hálfleikur var leikur sóknarinnar því staðan var 59-50 eftir tvo leikhluta, bæði lið áttu frekar auðvelda leið upp að körfunni. Skrítið að aðeins hafi veirð 9 stiga munur á liðunum þegar þau gengu í búningasklefana því Grindavík virtist …
Undanúrslit í kvöld
Grindavík tekur á móti Þór frá Þorlákshöfn í kvöld í undanúrslitum bikarnum. Á sama tíma mætast Tindastóll og ÍR á Sauðárkróki þannig að við vitum í kvöld hverjir mætast í Laugardalshöllinni í bikarúrslitunum. Stemmingin verður væntanlega svipuðu og þegar við herjuðum úrslitaeinvígi við Þór í deildinni fyrir tveimur árum. Leikur liðanna í vetur í Röstinni endaði með sigri Þórsara þannig …
ÍR – Grindavík í kvöld
Grindavík mætir ÍR í Hertz hellinum í kvöld 15. umferð Dominos deild karla. Grindavík er fyrir leikinn í þriðja sæti deildarinnar, 6 stigum frá Keflavík og KR og Njarðvík aðeins 2 stigum fyrir neðan. Leikurinn hefst klukkan 19:15
Njarðvík 60 – Grindavík 66
Grindavík tryggði sér sigur í mikilvægum leik gegn Njarðvík í gærkveldi. Leikurinn var í járnum allar 40 mínútur en frábær varnarleikur á síðustu mínútunum gerði útslagið. Crystal Smith er mætt aftur til Grindavíkur og átti fínan leik í gær. Leikurinn í gær var hin fínasta skemmtun, heimastúlkur með yfirhöndina framan af en okkar stelpur aldrei langt undan. Njarðvík var þremur …
Grindavík – Þór í bikarnum
Í dag var dregið um hverjir mætast í 4 liða úrslitum bikarkeppninnar. Grindavík kom fyrst upp úr hattinum og fá heimaleik gegn Þór Þorlákshöfn. Hinn leikurinn er Tindastóll-ÍR. Leikið verður 2.-3. febrúar
Grindavík – Haukar í kvöld
Grindavík tekur á móti Haukum í Dominsdeild kvenna í kvöld Grindavík er í sjöunda sæti fyrir þessa umferð, 4 stigum frá botnsætinu en líka 4 stigum frá fjórða sætinu. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru Grindvíkingar hvattir til að mæta og styðja stelpurnar.
Grindavík áfram í bikarnum
Grindavík er komið í 4 liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Njarðvík í gær. Lokatölur voru 78-77 í æsispennandi leik. Bæði lið hafa átt góðu gengi að fagna upp á síðkastið og því mátti búast við fjörugum og spennandi leik. Íþróttahúsið var þéttskipað og skemmtileg stemming hjá báðum hópum. Gestirnir leiddu leikinn í fyrri hálfleik og voru yfirleitt með …
Grindavík – Njarðvík
Það er stórleikur í íþróttahúsi Grindavíkur í kvöld. Strákarnir taka þá á móti Njarðvík í 8 liða úrslitum Powerade bikarsins. Bikarleikirnir eru alltaf sérstakir og því má búast við frábærri skemmtun í kvöld. Leikurinn byrjar klukkan 19:15 en upphitun byrjar í Salthúsinu klukkan 17:00 þar sem hægt verður að fá sér hamborgara og fleira. Jafnframt verður hægt kaupa miða …
Bikarleikur í kvöld
Grindvík tekur á mót KR í 8 liða úrslitum Powerade bikarsins í kvöld. Gengið hefur erfiðlega í deildinni en stelpurnar ætlar sér langt í bikarnum og því hvetjum við bæjarbúa til að mæta í Íþróttahúsið og styðja stelpurnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 í kvöld









