Egill Birgisson hefur klippt saman myndband sem ætti að kveikja í mönnum fyrir leikinn í dag.
Stóri dagurinn nálgast
Mikil spenna er komin í körfuboltaáhugafólk en eins og allir vita verður leikið til úrslita í Powerade-bikarnum á laugardag. Eflaust mæta KR-inga kokhraustir til leiks en fyrirliði þeirra, Fannar Ólafsson lofaði 2 stórum titlum á þessu tímabili og þar sem Powerade-bikarinn flokkast undir stóran titil þá er ljóst að Fannar er fyrirfram búinn að vinna þennan leik á móti …
Upphitun fyrir bikarleikinn
Nú eru aðeins þrír dagar í bikarúrslitaleik Grindavíkur og KR í Laugardalshöllinni. Glæsileg upphitun verður fyrir leikinn sem hefst á föstudagskvöldið með Pub quiz-spurningakeppni í Framsóknarhúsinu að Víkurbraut. Á laugardaginn ver þétt dagskrá fyrir úrslitaleikinn en Grindavík hefur leigt Þróttaraheimilið í Laugardalnum þar sem hitað verður upp. Um kvöldið verður svo ball með Geimförunum á Salthúsinu, sama hvernig leikurinn …
Dapurt
Hvað skal segja eftir þennan leik í kvöld? Verulega dapurt á báðum endum vallarins og það er nokkuð ljóst að ef við girðum okkur ekki almennilega í brók fyrir úrslitaleikinn á laugardag að þú mun þetta verða röndóttur dagur! Sóknarleikur okkar var hreinasta hörmung nánast allan leikinn og á meðan vörnin er ekki þeim mun sterkari þá getur útkoman …
Fréttir af yngri flokkum
Þá er frábæri helgi lokið þar sem stelpurnar unnu tvo leiki og töpuðu tveim Það voru 14 stelpur sem lögðu af stað á föstudaginn þar sem við stoppuðum á Litlu-Kaffistofunni og fengum okkur súpu og pönnuköku J Þá var haldið í bústað í eigum ömmu og afa Gígju. Stúlkurnar komu sér fyrir um leið og við mætum á svæðið og …
Flottur sigur hjá stelpunum
Stelpurnar sigruðu Fjölni 82-51 í Iceland Express deild kvenna í dag. Eins og lokarölur gefa til kynna spiluðu stelpurnar flotta vörn, að fá á sig 51 stig í efstu deild er hrikalega flott. Stelpurnar byrjuðu strax ákveðnar en Fjölnisstúlkur komu til baka, eftir það börðust stelpurnar eins og ljón. Grindavíkurstelpur leiddu með 12-16 stigum í öðrum og þriðja leikhluta …
Gjafmildir Grindvíkingar!
Grindvíkingar færðu Snæfellingum sigur á silfurfati í kvöld í uppgjöri efstu liðanna í Iceland Express deild karla. Eftir hörmulegan fyrri hálfleik, rúlluðu Grindvíkingar yfir Snæfellinga í seinni hálfleik en gleymdu sér á óskiljanlegan hátt á lokamínútunum og Snæfellingar stálu sigrinum! Ég hafði á tilfinningunni í upphafi leiks að Grindavík mynd vinna sannfærandi sigur í leiknum en sú tilfinning breyttist fljótlega …
Grindavík-Snæfell
Bæði karla og kvenna lið Grindavíkur taka á móti Snæfell í þessari viku í Iceland Express deildum liðanna. Stelpurnar spila í kvöld klukkan 19.15, en strákarnir á fimmtudag auðvitað klukkan 19.15. Stelpurnar eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni, þær þurfa virkilega sigur í þessum leik svo að þær haldi sér uppi. Strákarnir aftur …
Draumaúrslitaleikur í uppsiglingu!!
Eftir dapra síðustu tvo leiki sýndu Grindvíkingar virkilega hvað í þá er spunnið þegar þeir lögðu Hauka í undanúrslitum Powerade-bikarsins, 70-82. Frábær vörn í lokaleikhlutanum skóp þennan sigur en þá skoruðu Haukar einungis 13 stig. Jafnt var á öllum tölum fram í byrjun 4.leikhluta en þá skyldu leiðir. Eflaust spilaði inn í að Haukarnir léku á sínum bestu mönnum allan …
Oft var þörf en nú er nauðsyn!
Grindavík leikur á morgun einn mikilvægasta leik sinn á þessu tímabili þegar þeir mæta Haukum á útivelli í undanúrslitum Powerade-bikarsins en það er „stóri“ bikarinn. Eftir frábært gengi í vetur hefur liðið heldur betur hikstað að undanförnu og tapaði m.a. fyrir Haukum á heimavelli fyrir stuttu og það á sannfærandi hátt! Haukarnir hafa sett kynningarmyndband inn á youtube og eru …