Forvarnarvikan og UMFÍ leikur

Ungmennafélag GrindavíkurFimleikar, Forvarnarnefnd, Íþróttafréttir, Judó, Knattspyrna, Körfubolti, Skotdeild, Sund, Taekwondo, UMFG

Forvarnardagurinn er haldinn ár hvert og hvetur til hugleiðinga um verndandi þætti í lífi ungmenna.  Þátttakendur taka myndir af því sem þeir telja lýsa best Forvarnardeginum og þeim skilaboðum sem hann færir. Hver einstaklingur má senda inn 5 myndir hámark. Hver mynd á að innihalda vísun í skilaboð Forvarnardagsins.  Viðfangsefnin eru: • Samvera • Íþróttir og/eða tómstundir • Skólinn  Leikurinn …

Sam og Rio valin best á lokahófi knattspyrnudeildarinnar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG fór fram með glæsibrag nú á laugardagskvöldið. Um 270 manns mættu í mat að hætti Bíbbans og Atla Kolbeins og enn fleiri stigu dans fram á nótt við tóna Helga Björns og reiðmanna vindanna/SSSól. Sigga og Agnar fóru á kostum sem veislustjórar, Bjarni Arason mætti og söng með fólkinu og happdrættið var á sínum stað.  Verðlaunahafar kvöldsins voru …

Vinningshafar í happadrætti knattspyrnudeildar

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Happadrættið var á sínum stað á lokahófi knattspyrnudeildarinnar á laugardaginn. Vinningsnúmerin má sjá hér að neðan en vinningshafar geta haft samband við Petru Rós 869-5570 eða Ragnheiði 865-5218. Knattspyrnudeild UMFG þakkar stuðninginn!

Lokaleikur knattspyrnusumarsins á morgun – og svo lokahóf!

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík leikur sinn síðasta keppnisleik þetta árið á morgun, þegar liðið tekur á móti ÍBV. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetjum við Grindvíkinga til að loka þessu fótboltasumari með stæl og fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á okkar mönnum. Um kvöldið er svo komið að lokahófi knattspyrnudeildarinnar, en það verður haldið í íþróttahúsinu. Húsið opnar kl. 20:00 og …

Grindavíkurkonur kvöddu efstu deild með sigri

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Það var að litlu að keppa á Grindavíkurvelli á laugardaginn þegar botnlið deildarinnar, Grindavík og FH, mættust í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. Bæði lið voru þegar fallin úr deildinni og má því segja að þarna hafi verið spilað upp á heiðurinn. Grindavíkurkonur svöruðu því kalli ágætlega og fóru með nokkuð öruggan sigur af hólmi, 2-0. Það voru þær Helga Guðrún Kristinsdóttir og …

Grindavík tapaði á Akureyri í 7 marka leik

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Þrenna frá Sam Hewson dugði Grindvíkingum skammt á Akureyrarvelli á sunnudaginn þar sem liðið fékk á sig 4 mörk á fyrstu 33 mínútum leiksins. Staðan í hálfleik var 4-2 heimamönnum í vil. Grindvíkingar komu ágætlega til baka í seinni hálfleik og minnkuðu muninn í eitt mark á 74. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Í uppbótartíma átti Rodrigo svo fast skot …

Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG laugardaginn 29. september

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG verður haldið laugardaginn 29. september í íþróttahúsinu. Húsið opnar kl. 20:00 og borðhald kl. 20:30. Helgi Björns og reiðmenn vindanna/SSsól leika fyrir dansi að borðhaldi loknu.  Miðasala er hafin í Gula húsinu hjá Eiríki (s. 863-2040), hjá Ragnheiði (s. 865-5218) og hjá Petru Rós (s. 869-5570)

Grindavík fallið úr Pepsi-deild kvenna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Það var sannkallaður lífróður hjá Grindavík í Pepsi-deild kvenna í gær þegar liðið sótti KR heim. Grindavík varð að taka öll þrjú stigin til að halda voninni um sæti í efstu deild að ári á lífi. Það fór þó ekki betur en svo að KR vann leikinn, 2-1, og er Grindavík því fallið úr deildinni þegar ein umferð er eftir.  …

Tveir sigrar í næstu tveimur leikjum það eina sem getur bjargað stelpunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Það blæs ekki byrlega fyrir Grindavíkurkonur í Pepsi-deildinni þessa dagana en liðið tapaði dýrmætum stigum í fallbaráttunni á laugardaginn. Grindavík tók þá á móti ÍBV við erfiðar knattspyrnuaðstæður, en mikil rigning og hávaðarok settu svip sinn á leikinn. Lokatölur leiksins urðu 1-2 þar sem Rio Hardy skoraði mark Grindavíkur úr vítaspyrnu. Blaðamaður Fótbolta.net skrifaði tapið á klaufaleg mistök og einbeitingarleysi, …