Grindavík fallið úr Pepsi-deild kvenna

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Það var sannkallaður lífróður hjá Grindavík í Pepsi-deild kvenna í gær þegar liðið sótti KR heim. Grindavík varð að taka öll þrjú stigin til að halda voninni um sæti í efstu deild að ári á lífi. Það fór þó ekki betur en svo að KR vann leikinn, 2-1, og er Grindavík því fallið úr deildinni þegar ein umferð er eftir. 

Leikurinn var gerður upp á Facebook-síðu meistaraflokks kvenna og látum við þann texta fylgja hér:

Í gær var sannkallaður fallslagur í Frostaskjóli þar sem stelpurnar okkar mættu liði KR í leik þar sem öll 3 stigin urðu að verða okkar til að við gætum átt möguleika í síðustu umferðinni að halda okkar sæti í Pepsi deildinni að ári. 

Við mættum gríðarlega ákveðnar til leiks og var það þvert á gagn leiksins þegar KR skorar sitt fyrsta mark á 20. mínútu. Eins og blaut tuska í andlitið á okkur því þá þurftum við að skora 2 mörk. En áfram gakk…..Við spiluðum ágætlega en illa gekk okkur að koma boltanum yfir línuna og því var staðan ennþá 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik var mikið fjör og oft vorum við nálægt því að skora en þegar við svo fengum á okkur annað mark á 89. mínútu þá var þetta orðið heldur erfitt. Þá þurftum við að skora 3 mörk ! En Rio Hardy náði að klóra í bakkann á þeirri 90. og þar við sat. 2-1 tap staðreynd og niðurstaðan sú að við spilum í Inkasso deildinni á næsta ári. 

Síðasti leikur deildarinnar er heimaleikur gegn FH sem er líka fallið og því svolítið spilað upp á hjartað og heiðurinn.
Síðasti leikur sumarsins verður næsta laugardag 22 sept kl 14:00 á Grindavíkurvelli!

Umfjöllun Fótbolta.net um leikinn