Uppskeruhátíð 3. og 4. flokks

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Lokahóf 3. og 4. flokks stúlkna og drengja var haldið með pompi og pragt í gær.   Veittar voru viðurkenningar, spilað bingó og þá var glæsilegt veisluhlaðborð sem foreldrar krakkanna höfðu lagt til. Knattspyrnusumarið 2011 gekk ljómandi vel og voru leikmennirnir félaginu og Grindavík til sóma. Formaður unglingaráðs fór í stórum dráttum yfir starfsemi sumarsins og formaður knattspyrnudeildar fór yfir …

30 ára afmælislokhóf fótboltans – Haldið í Lava-sal Bláa lónsins

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Hið árlega lokahóf fótboltans verður haldið laugardaginn 1. október nk. með pompi og pragt í Lava-sal Bláa lónsins, en lokaumferð úrvalsdeildar karla fer fram fyrr um daginn.  Í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá því fyrsta lokahófið var haldið í Festi 1981 verður ýmislegt gert til þess að rifja upp gamla og góða tíma. Lokahóf fótboltans hefur verið …

Uppskeruhátíð 4.flokks og 3.flokks karla og kvenna

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Uppskeruhátíð 4.flokks og 3.flokks karla og kvenna verður haldin miðvikudaginn 14.september kl.17.00 á sal Grunnskóla Grindavíkur.   Auk verðlaunaafhendingar verður bingó með veglegum vinningum.   Hið fræga kökuhlaðborð á sínum stað en undanfarin ár hafa flottustu foreldrará Íslandi (Grindavíkurforeldrarnir) séð um að baka og lagst á eitt við aðstútfylla sameiginlegt hlaðborð af kræsingum.  

Grindavík 2 – Stjarnan 2

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík og Stjarnan skildu jöfn í skemmtilegum leik sem fór fram í dag. Grindavík stillti upp “íslensku” liði í dag með Óskar í markinu. Ólafur þjálfari og Orri sem hafsentar og Jobbi og Alexander bakverðir.  Fyrir framan vörnina voru Matthías og Bogi Rafn.  Magnús fremstur með Jóhann, Óla Baldur og Scotty fyrir aftan hann.  Þrælflott lið og voru mun betri …

Grindavík – Stjarnan á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík tekur á móti Stjörnunni á morgun klukkan 17:00 Eftir landsleikjafrí er boltinn í Pepsi deild karla loksins farinn að rúlla aftur.  Ef einhver skildi hafa gleymt því þá er Grindavík í neðri hluta deildarinnar en 6 stigum frá fallsæti, Stjarnan hinsvegar í baráttu um Evrópusæti. Stjarnan hefur tekið flest sín stig á heimavelli og unnið tvo leiki á útivelli …

Lokaleikur hjá stelpunum

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Síðasta umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu kvenna fer fram í dag. Grindavíkurstelpur mæta Fylki á Fylkisvelli klukkan 13:00. Fylkir er um miðja deild og því leikurinn ekkert sérstaklega mikilvægur þeim. En hjá okkar stelpum er þetta leikur um hvort þeir haldi sér uppi. Að vísu er markatalan mjög óhagstæð gegn KR en um að gera að klára mótið með stæl.

Robert og Derek farnir heim

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Skotarnir Robert Winters og Derek Young eru farnir aftur heim til Skotlands. Báðir ætla að reyna að landa samning í heimalandi sínu og fóru því áður en félagskiptaglugginn lokaðist 1.september samkvæmt samningi sínum.   Robert Winters spilaði 14 leiki í deildinni og skoraði þar 3 mörk. Auk þess spilaði hann í 3 bikarleikjum. Derek Young kom hinsvegar seinna til liðsins …

Íslandsmeistararnir sigruðu

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Nýkrýndir íslandsmeistarar í Pepsi deild kvenna, Stjarnan, mætti Grindavíkurliðinu í gær. Skemmst er frá því að segja að Stjarnan sigraði stórt 7-1.  Stjarnan var 1-0 í hálfleik en með öflugum leik í seinni hálfleik völtuðu gestirnir yfir Grindavík.  Mark Grindavíkur skoraði Shenka Gordon fimm mínútur fyrir leikslok. Þegar einn leikur er eftir, á móti Fylki 10 september, er staðan þannig …

Grindavík – ÍBV í dag

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík tekur á móti ÍBV í dag klukkan 18:00 Stelpurnar standa í baráttu við KR um sæti í efstu deild að ári.  Þrjú stig er í KR og verður reynt að sækja þau í kvöld.  ÍBV hefur komið á óvart í deildinni í ár og sitja öruggar í þriðja sætinu.  Fyrri leikur liðanna í eyjum fór 2-1 þar sem Grindavík …

Stig frá Akureyri

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Grindavík sótti stig norður á Akureyri í gær þegar þeir gerðu 0-0 jafntefli við Þór Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Víking. Jósef kom inn í staðinn fyrir Matthías og Magnús inn fyrir Winters. Ekki var mikið um færi í leiknum en bestu færin voru okkar meginn. Óli Baldur komst glæsilega einn inn fyrir vörn Þórsara en …