Naumt tap gegn Val

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur töpuðu gegn Val á Hlíðarenda 81-79 í úrvalsdeild kvenna um helgina. Heimakonur höfðu frumkvæðið lengst af en munurinn var þó aldrei mikill. Gestirnir frá Grindavík unnu síðasta fjórðunginn með fjórum stigum en það dugði ekki til. Kristrún Sigurjónsdóttir átti stórleik hjá Valskonum. Kristrún skoraði 35 stig og var með frábæra skotnýtingu hvað sem var af vellinum. Crystal Smith, spilandi þjálfari …

Grindavík burstaði Leikni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík burstaði 2. deildarlið Leiknis í bikarkeppni KKÍ sl. föstudagskvöld með 98 stigum gegn 52. Þetta var leikur kattarins og músinni en leikurinn fór fram aðeins sólarhring eftir að Grindavík skellti KR í úrvalsdeildinni. Yfirburðir Grindvíkinga voru miklir stax frá byrjun enda lið Leiknis ekki burðugt og án útlendinga. Ungu strákarnir í Grindavíkurliðinu fengu því að spreyta sig og stóðu …

Jólin alls staðar – tónleikar í Grindavíkurkirkju kl. 15

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Tónleikaförin „Jólin alls staðar” er að leggja af stað í ferð um landið. Þetta eru einstaklega ljúfir og fallegir tónleikar þar sem mestmegnis eru flutt gömlu góðu jólalögin sem við ólumst öll upp við. Þetta er líklega ein viðamesta tónleikaferð ársins þar sem 19 kirkjur verða heimsóttar í öllum landshlutum. Þar verða Regína Ósk, Guðrún Árný, Guðrún Gunnars og Jógvan …

Grindavík skellti KR

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík vann góðan útisigur gegn KR í áttundu umferð í Dominos-deildar karla í körfuknattleik, 80-87 í gærkvðöldi. Leikurinn var jafn og spennandi en gestirnir úr Grindavík sigu frammúr í lokaleikhlutanum og náðu í sinn sjötta sigur á leiktíðinni. Leikurinn byrjaði fjörlega og skiptust liðin á að skora. Staðan var jöfn í eftir fyrsta leikhluta 22-22. Grindvíkingar náðu að mjaka sér …

Bikarleikur í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Það er skammt stórra högga á milli hjá Grindavíkurstrákunum í körfubolta. Í gærkvöldi lögðu þeir KR í úrvalsdeildinni en í kvöld, föstudag, taka þeir á móti Leikni í bikarkeppninni kl. 20:00 (átta). Grindavík tókst ekki að landa bikarmeistaratitlinum í fyrravetur en ætla að gera harða atlögu að titlinum í að þessu sinni.

Leikurinn hrundi þegar þjálfarinn fór af velli

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík tapaði naumlega gegn Snæfelli, 76-83, í úrvalsdeild kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en þegar Crystal Smith þjálfari og leikmaður Grindavíkur fékk sína fimmtu villu þremur mínútum fyrir leikslok og allt í járnum, keyrði Snæfell fram úr á lokasprettinum og tryggði sér 7 stiga sigur. Snæfell byrjaði betur en jafnt var í hálfleik, 36-36. Grindavík …

Grindavík sækir KR heim

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Það verður sannkallaður stórleikur í Röstinni í íþróttahúsi KR þegar Grindavík sækir KR heim kl. 19:15. Grindavík er í 2. sæti deildarinnar og KR er aðeins tveimur stigur á eftir þrátt fyrir erfiða byrjun. Búast má við hörku leik eins og ávallt þegar þessi tvö lið mætast. Staðan í deildinni er þessi:1. Snæfell 7 6 1 708:610 12 2. Stjarnan …

Stelpurnar mæta Snæfelli

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur taka á móti Snæfelli í Röstinni kl. 19:15 í kvöld. Okkar stelpur eru heldur betur komnar í gang eftir erfiða byrjun en þær lögðu Íslandsmeistara Njarðvíkur í síðustu umferð. Snæfell er hins vegar hörku lið og er í 2. sæti deildarinnar. Því má búast við erfiðum leik hjá okkar stelpum. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna í Röstina …

Jólasýning fimleikadeildarinnar á sunnudaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Jólasýning fimleikadeildar UMFG verður haldin sunnudaginn 2. desember nk. Í ár samanstendur sýningin af iðkendum úr 1.-10. bekk. Sýningin hefst kl. 13:30 og stendur til 15:00. Íþróttahúsið opnar fyrir gesti kl. 13:00. Miðaverð er:  1000 kr. fyrir fullorðna. 250 kr. fyrir 6 – 16 ára. Frítt fyrir 5 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Sjoppa verður á staðnum. (Ath! að við höfum ekki posa til að …

Björn Lúkas valinn bestur

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Um helgina var haldið fyrsta Bikarmót Taekwondo sambands Íslands (TKÍ), en á hverju tímabili eru haldin þrjú slík mót til að ákvarða bikarmeistara. Grindvíkingar létu þar mikið að sér kveða og unnu til fjölda verðlauna en þar bar hæst að Björn Lúkas Haraldsson var valinn besti karl mótsins. Mótið var haldið í Akurskóla í Reykjanesbæ. Á mótinu var bæði keppt …