Jólasýning fimleikadeildarinnar á sunnudaginn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Jólasýning fimleikadeildar UMFG verður haldin sunnudaginn 2. desember nk. Í ár samanstendur sýningin af iðkendum úr 1.-10. bekk. Sýningin hefst kl. 13:30 og stendur til 15:00. Íþróttahúsið opnar fyrir gesti kl. 13:00.

Miðaverð er: 

  • 1000 kr. fyrir fullorðna.
  • 250 kr. fyrir 6 – 16 ára.
  • Frítt fyrir 5 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.

Sjoppa verður á staðnum. (Ath! að við höfum ekki posa til að taka við greiðslum).
Tilvalið að gera sér glaðan dag og koma í íþróttahúsið okkar og horfa á skemmtilega sýningu.

Eftir sýningu verður kökubasar, tilvalið að kaupa með sunnudagskaffinu.

Jólasýning Fimleikadeildar UMFG