FH – Grindavík á morgun

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Eftir langa bið er fótboltatímabilið að byrja aftur.  Fyrsti leikur á morgun gegn FH í Kaplakrika. Liðin mættust í vetur í Fótbolti.net mótinu þar sem leikar fóru 1-1 en leikur liðanna á síðsta ári á Kaplakrika fór ekki eins vel.   Fróðlegt verður að sjá hvernig Guðjón stillir liði sínu upp og þá sérstaklega miðjunni.  Þeir sem spiluðu flesta leikina …

Lokahóf körfuboltans með öðruvísi sniði – Sigurhátíð í Kvikunni

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Lokahóf körfuknattleiksdeildar nýkrýndra Íslandsmeistara Grindavíkur verður á morgun, laugardaginn 5. maí og verður það með allt öðru sniði en áður. Slegið verður upp mikill sigurhátíð í Kvikunni og verður þetta „standandi og minglandi sigurpartý,” líkt og Jón Gauti Dagbjartsson, stjórnarmaður í körfuboltanum komst að orði. Gert er ráð fyrir um 200 manns og fara 80 miðar í almenna sölu. Hægt …

Íslandsmeistarar lokahófa!

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur heldur lokahóf sitt með pompi og prakt annað kvöld, laugardagskvöldið 5. maí. Frábærum árangri verður fagnað en það sem bar hæst er vitaskuld Íslandsmeistaratitillinn sem karlaliðið tók loksins aftur eftir 16 ára bið! Kvennaliðið stóð sig líka frábærlega og vann 1. deildina og leikur því í deild hinna bestu að ári. Hófið verður með breyttu sniði en undanfarin …

Lokahóf körfuknattleiksdeildar

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Sigurhátíð verður slegin upp í Kvikunni á lokahófi körfuknattleiksdeildar sem verður haldin í Kvikunni í ár.   Húsið opnar kl. 19 og matur hefst kl. 20:00.  Veislustjóri er Jón Björn á karfan.is og annar boltaspekinganna á Rúv.Aðal-skemmtiatriðið er Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds. Eftir kl. 22:00 er ÖLLUM GRINDVÍKINGUM boðið frítt í Kvikuna!!!!!! Hófinu lýkur um miðnætti og þá fara allir …

GRINDAVÍK ÍSLANDSMEISTARI

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

GRINDAVÍK ER ÍSLANDSMEISTARI! Eftir 16 ára bið tókst Grindavík að landa titlinum með glæsilegum sigri í fjórðu rimmunni gegn Þór í Þorlákshöfn 78-72. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í leikslok og allt ætlaði um koll að keyra.  J´Nathan Bullock átti sannkallaðan stórleik í liði Grindavíkur í kvöld en hann skoraði 36 stig í leiknum og tók 8 fráköst. Ósvikin stemmning, þar …

VIÐ ERUM BESTIR! – MYNDASYRPA

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Það var fagnað í Grindavík fram undir morgun. Þegar Grindavíkurliðið keyrði heim Suðurstrandarveginn beið múgur og margmenni á Austurvegi skammt við tjaldsvæðið þar sem tugi blysa voru tendruð til heiðurs nýkrýndum Íslandsmeisturum. Gleðin var taumlaus og síðan var haldið á Salthúsið þar sem titlinum var fagnað. Hér má sjá myndir úr ýmsum áttum af fögnuðinum í gærkvöldi. Efsta mynd: Páll …

Glæsileg fjölmiðlaumfjöllun um Íslandsmeistaratitilinn – Samantekt

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Í öllum helstu fjölmiðlum landsins er fjallað ítarlega um Íslandsmeistaratitil Grindavíkur í gærkvöldi. Bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið eru með myndir á forsíðu sinni í dag. Þegar er komið eitt skemmtilegt myndband inn á Youtube frá fagnaðarlátum gærkvöldsins þegar liðið kom til Grindavíkur. Hér má sjá samantekt á fjölmiðlaumfjölluninni: Gríðarleg fagnaðarlæti í Grindavík –  Víkurfréttir – Myndband frá sigurgleðinni Myndband frá fagnaðarlátunum í …

SVONA Á AÐ FAGNA TITLINUM! – MYNDASYRPA

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Íslandsmeistarar Grindavíkur fengu stórkostlegar móttökur þegar þeir komu heim í gærkvöldi eftir að hafa keyrt Suðurstrandaraveginn.  Múgur og margmenni safnaðist á Austurvegi við tjaldsvæðið og sprautað var úr slökkvibílum yfir meistarana.  Hér er frábær myndasyrpa frá fagnaðarlátunum sem Haraldur H. Hjálmarsson tók. Beðið eftir meisturunum. Spennan magnast. Guðmundur Bragason, fyrirliði meistaraliðsins frá 1996, með son sinn á öxlunum að taka …

ÞEIR SKORA OG SKORA! – MYNDASYRPA

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Hér eru fleiri myndir frá fagnaðarlátunum í gærkvöldi þegar Grindavíkurliðið kom með bikarinn heim frá Þorlákshöfn. Sextán ára bið eftir stóra titlinum á enda. Til hamingju Grindvíkingar með þetta frábæra lið! Myndir tók Þorsteinn Gunnar Kristjánsson og þær tala sínu máli.  

Petrúnella og Ólöf Helga valdar í A-landsliðið

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Tvær Grindavíkurstelpur eru í A landsliði kvenna í körfubolta sem fer á NM í Osló, Noregi, dagana 23.-27. maí nk. Það eru þær Petrúnella Skúladóttir og Ólöf Helga Pálsdóttir sem báðar leika með Njarðvík og urðu Íslands- og bikarmeistarar með liðinu. Petrúnella á 18 landsleiki að baki en Ólöf Helga 3.