Lokahóf körfuknattleiksdeildar

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Sigurhátíð verður slegin upp í Kvikunni á lokahófi körfuknattleiksdeildar sem verður haldin í Kvikunni í ár.

 

Húsið opnar kl. 19 og matur hefst kl. 20:00. 

Veislustjóri er Jón Björn á karfan.is og annar boltaspekinganna á Rúv.
Aðal-skemmtiatriðið er Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds.

Eftir kl. 22:00 er ÖLLUM GRINDVÍKINGUM boðið frítt í Kvikuna!!!!!! 
Hófinu lýkur um miðnætti og þá fara allir á Salthúsið á dúndur ball með Dans á Rósum!!!

 

Verð einungis 2.500 kr.  Takmarkað miðaframboð og hægt að kaupa miða í versluninni Palóma.

Í viðtali á grindavik.is segir Jón Gauti Dagbjartsson
„Við ætlum að heilgrilla sex lambaskrokka, þarna verða skemmtiatriði eins og Raggi Bjarna og fleiri og svo verðlaunaafhendingar en ræðuhöld verða í algjöru lágmarki. Þarna verða auðvitað borð og stólar fyrir þá sem vilja setjast en veðurspáin er góð og við höfum pallinn með þessu frábæra útsýni yfir höfnina. Veislustjóri verður Jón Björn, ritstjóri vefsins karfan.is. Við viljum einfaldlega fara nýja leið í þessu og hvetjum okkar frábæru stuðningsmenn til þess að mæta og taka þátt í sigurgleðinni með okkur”

„Í körfuboltanum er það þannig að við vitum aldrei hvenær henni lýkur og því er erfitt að skipuleggja lokahóf með miklum fyrirvara. En þar sem við fögnum núna Íslandsmeistaratitli eftir allt of langa bið er ærin ástæða til þess að koma og taka þátt í sigurhátíðinni, við viljum sjá sem flesta í Kvikunni en viljum um leið hafa þetta létt og skemmtilegt þannig að fólk geti spjallað saman og haft það hugguglegt, fá að strjúka bikarnum góða og kyssa leikmennina, og kannski stjórnarmennina líka. Þetta á bara að vera gaman”