Tap gegn Haukum og Pálína meiddist

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur töpuðu fyrir Haukum með 18 stiga mun, 86-68, í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Tapið var ekki eina áfallið því lykilleikmaður liðsins, Pálína Gunnlaugsdóttir meiddist eftir 28 mínútna leik á hné og en óvíst er hversu alvarleg þau eru. Bandarískur leikmaður Hauka, Lele Hardy, hélt heimaliðinu á floti og réðu Grindvíkingar illa við hana. Jóhanna Rún Styrmisdóttir átti …

Haukar – Grindavík í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík og Haukar mætast á Ásvöllum í kvöld í tíundu umferð Dominosdeild kvenna.  Liðin eru jöfn að stigum eftir níu umferðir, 10 stig hvor eftir 5 sigurleiki. Leikurinn hefst klukkan 19:15 Keflavík og Snæfell eru jöfn í efstu tveimur sætunum með 16 stig en leikurinn í kvöld sker úr hvor liðið ætlar að fylgja efstu liðunum. Haukar sigruðu Njarðvík í …

Kvennaleiknum frestað um sólarhring

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík átti að sækja Hauka heim í úrvalsdeild kvenna í körfubolta á Ásvöllum kl. 19:15 í kvöld. Vegna landsleik Íslands og Króatíu hefur leiknum verið frestað um sólarhring og fer því fram á morgu miðvikudag á sama tíma. Grindavík og Haukar eru jöfn í 3. sæti deildarinnar með 10 stig.

Bikarmót í Sandgerði

Ungmennafélag GrindavíkurTaekwondo

Fyrsta bikarmót í bikarmótaröð TKÍ verður haldið helgina 30.nóv -1. des í íþróttamiðstöðinni í Sandgerði. Hvetjum alla iðkendur með gula rönd og hærra til þess að skrá sig og vera með. Skráningu á Bikarmótið lýkur á fimmtudag. Smellið á hlekkinn og fyllið út https://docs.google.com/spreadsheet/viewform?usp=drive_web&formkey=dHJaYTBPQjR6enhKYkhVVDk5dEdKWmc6MA#gid=0 Keppnisgjöld eru 2000 kr fyrir 11 ára og yngri og 3000 kr fyrir 12 ára og …

Nýr Kani lofar góðu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík skellti Stjörnunni örugglega 87-67 í úrvalsdeild karla í körfubolta í Röstinni. Earnest Lewis Clinch Jr. eða Fjarkinn eins og sumir kalla hann, nýjasti bandaríski leikmaður Grindavíkur og sá fjórði röðinni á þessari leiktíð, lofar góðu en hann skoraði 17 stig og sýndi flott tilþrif.  Grindavík hafði talsverða yfirburði allan tímann og sigurinn aldrei í hættu. Staðan í hálfleik var …

Árgangadiskó – Allir velkomnir

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Í tilefni 30 ára fermingarafmæli 1969 árgangsins ætlar sá árangur að borða saman á Salthúsinu í Grindavík nk. laugardagskvöld. Um kl. 23 verður brjálað diskó þar sem allir eru velkomnir.   Að sögn Ingvars Guðjónssonar mun DJ Flóvent þeyta skífum og sér árgangur 69 um að halda uppi stuðinu eins og honum einum er lagið.

Grindavík 87 – Stjarnan 67

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Íslandsmeistararnir sigruðu bikarmeistarana örugglega í sjöttu umferð Dominosdeild karla í gær.  Lokatölu voru 87-67 Ný erlendur leikmaður lék með Grindavík í gær og er þar á ferðinni Lewis Clinch Jr sem spilaði áður með Georgia Tech háskólann,  Ísrael, NBA-D League, í Puerto Rico svo eitthvað sé nefnt. En að leiknum.. Leikurinn byrjaði illa hjá báðum liðum, skotin voru ekki að detta og …

Davor Suker heimsótti Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Davor Suker forseti knattspyrnusambands Króatíu heimsótti Grindavík í gær í fylgd góðvinar síns Milans Stefáns Jankovic þjálfara Grindavíkur en þeir spiluðu saman í fjögur ár með Osijek á sínum tíma í Júgóslavínu og þeir hafa haldið sambandi síðan þá. Suker var einn fremsti knattspyrnumaður Króata á sínum tíma en hann varð markakóngur á HM 1998. Suker er að sjálfsögðu staddur …

Stórtap gegn Keflavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavíkurstelpur steinlágu fyrir Keflavík í úrvalsdeild kvenna í körfubolta með 20 stiga mun, 64-84, í Röstinni í gærkvöldi. Villuvandræði í upphafi seinni hálfleiks gerðu útslagið og þá hittu Grindavíkurstúlkur afar illa í leiknum. Heimakonur í Grindavík höfðu fjögurra stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta en eftir það tóku gestirnir við sér. Leikhlutarnir sem á eftir fylgdu voru í eigu Keflvíkinga …

Grindavík og Stjarnan mætast í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Öllum er í fersku minni úrslitarimma Grindavíkur og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta síðasta vetur þar sem Grindavík hafði betur í oddaleik. Hins vegar hafði Stjarnan betur í bikarúrslitaleik liðanna. Liðin mætast í Röstinni í kvöld kl. 19:15 og er vonast til að Grindavík frumsýni nýjan Kana í leiknum. Stjarnan er jafnframt nýbúin að skipta um bandarískan leikmann en liðið …