Samkvæmt vefsíðunni bold.dk er líklegt að sóknarmaðurinn Lasse Qvist verði orðinn leikmaður Grindavíkur á næstu dögum. Hann hefur fengið munnlegt tilboð frá félaginu og vonast til að fá það skriflegt í dag eða á morgun. Qvist segir að sér lítist nokkuð vel á tiboðið en þá séu einhverjir hlutir sem hann vilji hafa aðeins öðruvísi. Lasse er 25 ára gamall …
Frestaður aðalfundur knattspyrnudeildar
Vegna óviðráðnalegra orsaka frestast framhaldsaðalfundur Knattspyrnudeildar UMFG til fimmtudagssins 16 febrúar nk kl 20:00 Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Fundarsetning.2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga vegna ársins 2011.3. Reikningar teknir til umræðu og samþykktir.4. Önnur mál.5. Fundi slitið. Stjórn Knattspyrnudeildar UMFG.
Bullock með 51 stig!
Á tíma leit þannig út að aðeins einn maður væri á vellinum. J’Nathan Bullock leikmaður Grindavíkurliðsins fór hamförum þegar Grindavík lagði ÍR að velli með eins stigs mun, 90-89. Bullock skoraði 51 stig og hirti 14 fráköst en það var Giordan Watson sem reyndist hetja okkar manna þegar hann skoraði sigurkörfuna á síðustu sekúndu leiksins. Páll Axel Vilbergsson átti góða …
Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
Milan Stefán Jankovic, aðstoðarþjálfari Grindvíkinga, mun á mánudag fara til Sarajevo í Bosníu/Herzegóvínu þar sem hann fer á námskeið til að fá UEFA Pro þjálfaragráðuna. Milan Stefán verður ytra í tvær vikur en hann mun fara nokkrum sinnum á námskeið næstu mánuðina. ,,Þetta tekur 18 mánuði. Ég fer þrisvar á þessu ári og tvisvar á næsta ári,“ sagði Milan Stefán …
ÍR 89 – Grindavík 90
Grindavík sigraði ÍR í 14. umferð Iceland Express deildarinnar í gær. Heimamenn í ÍR voru yfir nær allan leikinn en það eru stigin í lok leiks sem gilda. Grindavík er þar með búið að vinna 13 af 14 leikjum í deildinni og eru með gott forskot í efsta sæti. J’Nathan Bullock átti sannkallaðan stórleik þar sem hann skoraði 51 stig …
Bullock……………
Smá aukapistill eftir leik gærkvöldsins, eins viturlegur og hann getur orðið m.v. að ég var ekki viðstaddur en sem fyrr takið þið vonandi viljann fyrir verkið 🙂 Ekki þarf að orðlengja mikið um þennan leik. J´nathan Bullock átti hann nánast allan frá a – ö! Aldeilis ótrúlegar tölur hjá honum, 51 stig og 14 fráköst…… Hann bar liðið greinilega algerlega …
Framhaldsaðalfundur Knattspyrnudeildar UMFG
Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 9. Febrúar kl 20:00 í félagsheimili knattspyrnudeildar Austurvegi 3. Dagskrá: 1. Fundarsetning. 2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga vegna ársins 2011. 3. Reikningar teknir til umræðu og samþykktir. 4. Önnur mál. 5. Fundi slitið. Stjórn Knattspyrnudeildar UMFG.
Grindavík sækir ÍR heim
Grindavík sækir ÍR heim í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Grindavík er efst í deildinni með 24 stig og er með 6 stiga forskot á Stjörnuna og Keflavík. ÍR er hins vegar í 7. sæti með 12 stig og í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina og svo gæti farist að þessi tvö lið mætist þar í 8 …
Líkamsræktarstyrkur til UMFG
Á fundi bæjarráðs lagði bæjarstjóri fram tillögu að styrk til íþróttafélaga í Grindavík á móti kostnaði við líkamsrækt í heilsurækt Actic ehf. í sundmiðstöð Grindavíkur. Actic býðst til að selja íþróttafélögum árskortið á 19.900 kr. Bæjarráð samþykkir að Grindavíkurbær veiti styrk sem samsvarar því gjaldi sem iðkendur greiða í sund, þ.e. 8.500 kr. Þá verður árgjaldið á hvern íþróttamann 11.400. Styrkurinn …
Breytt fyrirkomulag á greiðslu æfingagjalda UMFG 2012
Ákveðið hefur verið að æfingagjald verði kr. 20.000 á barn fyrir árið 2012 og má barnið æfa eins margar íþróttir og það vill. Innheimtuseðlar verða gjaldfærðir í heimabanka foreldra og verður æfingagjaldinu skipt upp í tvo hluta; janúar-júní og júlí-desember 2012. Ef æfingagjöld fyrir 2011 hafa ekki verið greidd þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu UMFG.Deildir félagsins reiða sig á þessar …









