Breytt fyrirkomulag á greiðslu æfingagjalda UMFG 2012

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Ákveðið hefur verið að æfingagjald verði kr. 20.000 á barn fyrir árið 2012 og má barnið æfa eins margar íþróttir og það vill. Innheimtuseðlar verða gjaldfærðir í heimabanka foreldra og verður æfingagjaldinu skipt upp í tvo hluta; janúar-júní og júlí-desember 2012.

Ef æfingagjöld fyrir 2011 hafa ekki verið greidd þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu UMFG.
Deildir félagsins reiða sig á þessar greiðslur til að geta sinnt sínu starfi vel og er það ósk okkar að fólk sem á eftir að greiða æfingagjöld geri skil sem fyrst.

Ungmennafélag Grindavíkur býður upp á: 
• Fimleika
• Júdó
• Knattspyrnu
• Körfuknattleik
• Sund
• Taekwondo

Ekki verða veittir neinir afslættir af æfingagjöldum þar sem þau eru mikið niðurgreidd.
Starfsmaður UMFG tekur við greiðslum á æfingagjöldum í húsi UMFG (bláa útistofa við grunnskólann) mánudaga og fimmtudaga milli kl. 14-18.

Einnig er hægt að leggja inn á reikning UMFG :
0143-26-924
kt. 420284-0129

Hægt er að hafa samband við starfsmann UMFG í síma 426-7775 á sömu tímum og opið er, einnig er hægt að semja um greiðslur og gera samning við stafsmann um greiðsludreifingu.