Íslenska landsliðið í körfubolta karla tekur á móti Serbíu í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í Laugardalshöll. Grindvíkingar eiga fulltrúa í liðinu sem er Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Helgi Jónas Guðfinnsson var aðstoðarþjálfari í undirbúningnum en hefur nú stigið til hliðar. Serbía er eitt af sterkustu liðum Evrópu í dag og því sannkallaður stórleikur sem boðið verður upp á. Þau …
Þrjú dýrmæt stig í hús
Grindavík gerði sér lítið fyrir og sigraði Stjörnuna í Garðabæ 4-3 í Pepsideild karla í knattspyrnu. Þar sem Fram tapaði á sama tíma fyrir Selfossi er allt opið í spennandi fallbaráttu þessara þriggja liða. Undirfarin þrjú ár hefur haustið verið tími Grindavíkurliðsins en okkar menn hafa þá bjargað sér frá falli með góðum lokaspretti. Svo virðist sem sagan sé hugsanlega …
Pape bestur í 15. umferð
,,Ég er mjög sáttur við að vera valinn leikmaður umferðarinnar, þetta er í fyrsta skipti í efstu deild og ég er gríðarlega sáttur með þetta,“ sagði Pape Mamadou Faye við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 15. umferðar í Pepsi-deild karla. Grindvíkingar unnu Stjörnuna 4-3 í gær þar sem Pape skoraði og fór á kostum í sóknarleik Grindvíkinga. Pape …
Stjarnan 3 – Grindavík 4
Frábær seinni hálfleikur hjá Grindavík tryggði þeim sigur á Stjörnunni í 15. umferð Pepsi deildar karla. Fyrirliðinn okkar, Ólafur Örn Bjarnason, hefur átt í meiðslum síðustu daga og var ekki með í kvöld. Í hans stað kom Björn Berg Bryde. Aðrir leikmenn voru Óskar Pétursson, Ray Anthony Jónsson sem er fyrirliði í dag, Pape Mamadou Faye .Iain James Williamson, Matthías Örn Friðriksson, Oluwatomiwo …
Grindavík 5 – Tindastóll 2
Grindavík er komið í fjórða sætið í 1.deild kvenna B eftir góðan sigur á Tindastól í gær. Leikurinn fór 5-2 fyrir okkar stúlkur þar sem Íris Eir Ægisdóttir skoraði m.a. þrjú mörk, Þórkatla Albertsdóttir skoraði hin tvö mörkin. Næstu tveir leikir og jafnframt þeir síðustu í riðlakeppninni eru gegn Álftanesi á útivelli 16. ágúst og svo taka stelpurnar á móti …
Íris Eir með þrennu
Íris Eir Ægisdóttir skoraði þrennu fyrir Grindavík þegar þær gulklæddu sigruðu Tindastól 5-2 í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Eftir erfiða byrjun hafa Grindavíkurstelpur heldur betur rétt úr kútnum en reyndar á liðið ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Grindavík teflir fram mikið breyttu liði frá því í fyrra þegar það féll úr Pepsideildinni. Íris Eir fór m.a. í Keflavík …
Helgi Jónas hættir sem aðstoðar landsliðsþjálfari
Helgi Jónas Guðfinnsson hefur látið af störfum sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í körfubolta vegna breytinga í vinnu. Hann mun hins vegar vera liðinu áfram innan handar með styrktarþjálfun. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Helgi Jónas hætti sem kunnugt er sem þjálfari Grindavíkur eftir að hafa gert liðið að Íslandsmeisturum í vor.
Helgi Jónas hættir sem aðstoðar landsliðsþjálfari
Helgi Jónas Guðfinnsson hefur látið af störfum sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í körfubolta vegna breytinga í vinnu. Hann mun hins vegar vera liðinu áfram innan handar með styrktarþjálfun. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Helgi Jónas hætti sem kunnugt er sem þjálfari Grindavíkur eftir að hafa gert liðið að Íslandsmeisturum í vor.
Grindavík – Tindastóll í kvöld FRÍTT Á VÖLLINN
Grindavík tekur á móti stelpunum frá Tindastól í 12.umferð Íslandsmótsins Liðin eru í 6. og 7. sæti í 1.deild kvenna, B-riðli, þar sem Grindavík er með einu stigi meira. Frítt er á völlinn í boði HP gámar. Nánar um leikinn hér fyrir neðan.
Stóðu sig vel á Unglingalandsmóti UMFÍ
Alls tóku 13 keppendur frá UMFG þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið var á Selfossi um helgina. Grindvísku unglingarnir unnu til nokkurra verðlauna en þau kepptu í sundi, motocrossi, knattspyrnu, körfuknattleik og frjálsum íþróttum. Að sögn Bjarna Más Svavarssonar formanns UMFG voru grindvísku unglingarnir UMFG og sínu byggðarlagi til mikils sóma en hann hafði reyndar vonast eftir fleiri þátttakendum. Fánaberi …









