Knattspyrnuskóli UMFG og Lýsis – Æfingatímar í sumar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Knattspyrnuskóli UMFG verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða eitt fjögurra vikna námskeið í júní og júlí og eitt þriggja vikna námskeið í ágúst.    Á námskeiðunum verður iðkendum skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt …

Grindavík – Keflavík – leik frestað

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Leikur Grindavíkur og Keflavíkur sem átti að fara fram í kvöld í 1.deild kvenna frestast vegna veðurs. Liðin eigast við í 1.deild kvenna B-riðli þar sem þau hafa bæði leikið einn leik.  Liðin mættust hinsvegar á sama velli í bikarnum fyrr í vor þar sem Grindavík sigraði 3-1.  

Grindavík áfram á sigurbraut

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík tók á móti Tindastól í fjórðu umferð 1. deild karla í gær. Það er skemmst frá því að segja að Grindavík sigraði leikinn örugglega 4-1.  Stefán Þór Pálsson og Juraj Grizelj skoruðu fyrir Grindavík í fyrri hálfleik og Jóhann Helgason og Óli Baldur Bjarnason í þeim seinni.  Ánægjulegt að okkar menn notuðu sér föst leikatriði þar sem þeir skoruðu þrjú …

Grindavík stóð vel í KR

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík tapaði fyrir KR í 32ja liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Grindvíkingar stóðu sig mjög vel en KR-ingar eru með reynslumikið lið sem kláraði leikinn á lokasprettinum. Grindavík hafði fengið bestu færi leiksins áður en KR komst yfir á 30. mínútu. En Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði metin fyrir Grindavík á 63. mínútu eftir að hann fylgdi vel eftir skoti …

KR 3 – Grindavík 1

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík og KR mættust á KR vellinum í gær í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins.  Lokatölur voru 3-1 fyrir KR Grindavík byrjaði leikinn mjög vel og voru mun betri fyrstu 20 mínúturnar.  Leyfðu heimamönnum að stýra leiknum en beittu hættulegum skyndisóknum með hinn öskufljóta Magnús Björgvinsson í fremstu víglínu.  Komst hann m.a. í gott færi en landsliðsmarkvörðurinn lokaði markinu vel. Grindavík …

Grindavík – Tindastóll

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Leikur Grindavíkur og Tindastóls sem átti á fara fram á Sauðárkróki á sunnudag hefur verið færður til Grindavíkur.  Leikurin hefst klukkan 15:00. Það er því fín upphitun fyrir knattspyrnumót hverfanna sem hefst strax á eftir leiknum.

Íþróttamót um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurUMFG

Mikið verður um dýrðir um helgina vegna Sjóarans síkáta.  Margir áhugaverðir íþróttaviðburðir verða þar á meðal. Golfmót Sjóarinn Síkáti  golfmótið er með punktafyrirkomulagii. Eins og undanfarin ár verður engu tilsparað í að gera mótið sem veglegast. Megin uppistaða vinninga kemur víða að, m.a. fiskafurðir,sælgæti, matvara og fleira.Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin með forgjöf og efsta sætið án forgjafar. …

Grindavík sækir KR heim í bikarnum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík sækir KR heim í 32ja liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu á KR-völl í kvöld kl. 19:15. Búast má við erfiðum leik fyrir Grindavík enda KR á toppnum í úrvalsdeildinni en eins og allir vita geta ævintýrin gerst í bikarnum.  KR hefur gefið út leikskrá fyrir leikinn og má sjá hana hér. Þar eru ýmsar áhugaverðar staðreyndir um bikarleiki liðanna …