Frábærir styrktaraðilar!!!

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Eins og fram kom í síðustu pistlum var skrifað undir nýja styrktarsamninga við helstu bakhjarla körfuknattleiksdeildarinnar, Stakkavík, Vísi og Þorbjörn.   Þessir samningar auðvelda mjög starf körfuknattleiksdeildarinnar og er vart hægt að lýsa í orðum hversu þakklátir forsvarsmenn körfuknattleiksdeildarinnar eru þessum fyrirtækjum!  Á myndinni má sjá þegar skrifað var undir en þarna eru þeir Eiríkur Tómasson frá Þorbirni, Magnús Andri …

Grindvíkingar ofarlega í tölfræði KKÍ

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Hérna eru upplýsingar af heimasíðu KKÍ yfir tölfræði þeirra leikmanna sem hafa spilað undir okkar merki. 20 efstu leikmenn í nokkrum tölfræði flokkum.   Stigahæstu leikmenn: Þar eigum við 2 Grindvíkinga: Guðmund Bragason í 4 sæti með 5655stig og Pál Axel í 10 sæti með 4074 stig ,aðrir eru Guðjón Skúlason, Pálmar Sigurðsson,JónKr. Gíslason,Jóhannes Kristbjörnsson,Alexander Ermolinski,Brenton Birmingham og KristinnFriðriksson Frákastahæstu: Þar …

Dauft kvöld….

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Þótt Deildarmeistarnir sem voru krýndir í kvöld, ættu að eiga þennan pistil með húð og hári, þá ætla ég að hafa mynd af bikarmeisturum 9. flokks en þeir voru líka heiðraðir í kvöld.     Það mikilvægasta í kvöld var líklega undirskrift á nýjum samningum við hin frábæru fyrirtæki, Stakkavík, Vísi og Þorbjörn. Rúsínan í pylsuendanum átti svo að vera …

Heiðrun, undirskrift og afhending

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Í kvöld verður mikið um að vera í Röstinni…… Karlaliðið okkar leikur við Snæfell og má búast við hörkuleik þrátt fyrir að við séum búnir að tryggja okkur Deildarmeistaratitilinn.  Snæfell er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og ég trúi ekki að okkar menn ætli að mæta inn í úrslitakeppnina með nokkur töp á bakinu…. Þar fyrir utan verður …

100 Grindvíkingar í landsliðum

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Magnús Andri Hjaltason, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG, hefur tekið saman ýmsa tölfræði um körfuboltann í Grindavík.  Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur átt 100 leikmenn sem eru uppaldir Grindvíkingar og hafa þeir spilað 1117 landsleiki Hjá meistaraflokki karla eru þetta 45 leikmenn með 752 landsleiki . Hjá konum eru þetta 55 leikmenn með 425 landsleiki. Leikmenn hjá meistaraflokki karla sem fengnir hafa verið frá …

Enn einn sigurinn

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavíkurstúlkur sigruðu í gær Laugdæli í 1 deild kvenna. Leikurinn fór fram á Laugarvatni í gærkvöldi og var sigurinn í stærri kantinum, lokatölur 31-90. Stelpurnar léku afar vel í gær og var sigurinn aldrei í hættu eins og lokatölurnar gefa til kynna. Grimm vörn og hraður sóknaleikur var það sem að skilaði sigrinum í gær. Laugdælir reyndu ýmiss varnarafbrigði en stelpurnar leystu …

Tímabært tap

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Eftir nokkra dapra leiki að undanförnu og að Deildarmeistaratitillinn var kominn í höfn, var líklega kominn tími á að Grindavíkurliðið myndi “loksins” tapa….. Sú varð raunin í gærkvöldi þegar við mættum nokkuð heitu liði Þórs frá Þorlákshöfn.  Jafnt var á flestum tölum í fyrri hálfleik en Þórsliðið nánast tryggði sigurinn í 3. leikhluta þegar þeir völtuðu yfir okkar menn. Hvað …

Öruggur sigur

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

  Stelpurnar léku við botnlið Laugdæla á sunnudaginn. Sigurinn var aldrei í hættu og sigldu stelpurnar sigrinum örugglega í höfn.     Leikurinn var vel leikinn af stelpunum og var vörnin að vanda í fyrirrúmi. Hittnin hefði mátt vera betri en það kemur. Lokatölur urðu 77-31. Stigaskor: Jeanne 15, Katrín Ösp 14 Berglind Anna 11, Jóhanna Rún og Mary gerðu 9 stig …

Konukvöldið 2012

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Konur!!! Takið föstudagskvöldið 23. mars frá! Konukvöldið vinsæla verður haldið í Eldborgarsalnum við Bláa lónið. Aðal númer kvöldsins enginn annar en Páll Óskar Hjálmtýsson. Nánar auglýst síðar en Linda í Palómu veit allt um málið.  

Deildarmeistarar??

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

Grindavík getur tryggt sér Deildarmeistaratitilinn í kvöld með sigri á tvöföldum meisturum síðasta árs, KR. Leikurinn fer fram í Röst okkar Grindvíkinga og hefst kl. 19:15. Þótt Deildarmeistaratitilinn verði tryggður í kvöld þá verður hann ekki afhentur en við fáum að sjá titil í kvöld því 9. flokkur karla varð bikarmeistari um síðustu helgi og verða drengirnir hylltir á leiknum …