3. leikurinn á morgun í Röstinni

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Sökum lélegs internetssambands og svo vinnu, gat ég ekki skrifað pistil eftir sigurinn í Garðabænum á föstudagskvöldið en svei mér þá ef það er ekki bara meira taugatrekkjandi að fylgjast svona með úr fjarlægð í gegnum internetið…..   En gleðin var mikil hér um borð og svo til að smella rjóma ofan á kökuna komu Agnar, Daníel og Margrét okkur í …

Fannar Helgason í 2. leikja bann!

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

KKÍ hefur dæmt í kæru Keflvíkinga á hendur Fannari Helgasyni, leikmanni Stjörnunnar og er niðurstaðan 2. leikja bann.  Hann leikur því ekki næstu 2 leiki sem gætu orðið síðustu leikir Stjörnunnar á þessu tímabili þar sem Grindavík leiðir 1-0 og þarf 2 sigra í viðbót.  En sem fyrr segi ég og skrifa að þátttaka Fannars eða fjarvera, ríður ekki baggamuninn …

Áfram heldur fjörið

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík og Stjarnan mætast öðru sinni í rimmu sinni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla annað kvöld, föstudag og fer leikurinn fram í Ásgarði þeirra Stjörnumanna í Garðabænum. Mikið fjör er í úrslitakeppninni og í þessum skrifuðu orðum er Þórsarar úr Þorlákshöfn að rúlla KR-ingum upp og jafna þar með rimmu sína við Vesturbæjarstórveldið.  Skyldu Stjörnumenn gera slíkt hið sama …

1 – 0 fyrir Grindavík!

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík vann fyrsta leik undanúrslitarimmu sinnar við Stjörnuna á heimavelli í kvöld og urðu lokatölur 83-74.   Ég ætla að skrifa um leikinn þótt ég hafi ekki verið á staðnum.  Ég heyrði í bróður mínum, sjálfum Gauta „the golden left foot“ og ef ég fer með miklar fleipur í þessum pistli þá er bara við hann að sakast 🙂 Leikurinn var …

Tvískinnungur Stjörnumanna???

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Ég lofaði pistli fyrir leik kvöldsins sem reyndar hefst eftir rétt tæpar 2 klst svo kannski les þetta enginn áður en haldið verður á leikinn….  En betra er seint en aldrei ekki rétt??  Og á maður ekki að standa við loforð??  Svo eruð þið kannski og líklega bara ekkert að bíða eftir þessum pistli mínum og nennið ekkert að lesa …

Undanúrslitin hefjast í dag, Grindavík byrjar á morgun

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Undanúrslit Iceland Express deildar karla hefjast í kvöld þegar KR og Þór Þorlákshöfn ríða á vaðið.  Við hefjum leik á morgun og er andstæðingur okkar Stjarnan en við eigum harma að hefna síðan í fyrra þegar Stjarnan sló okkur út í 8-liða úrslitunum! Við fórum auðveldlega í gegnum fyrstu umferð eins og flestir áttu von á og unnum Njarðvík 2-0. …

Grindavík – Stjarnan í undanúrslitum

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Stjarnan sigraði Keflavík í oddaleiknum í gær og mæta því Grindavík í undanúrslitum Iceland Express deildar karla Það lið sem sigrar fyrr þrjá leiki kemst áfram  # Hvenær Hvar 1. Þriðjudaginn 10.apríl klukkan 19:15 Grindavík 2. Föstudaginn 13.apríl klukkan 19:15 Ásgarði Garðabæ 3. Mánudaginn 16.apríl klukkan 19:15 Grindavík 4. Fimmtudaginn 19.apríl klukkan 19:15 (ef þess þarf) Ásgarði Garðabæ 5. Sunnudaginn …

Leikur nr. 2 í Njarðvík í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Leikur nr. 2 í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar fer fram í kvöld í Njarðvík og hefst kl. 19:15.  Kannski verður þetta síðasti leikur Njarðvíkur fyrir sumarfrí en Grindavík tryggir sig í undanúrslitin með sigri.  M.v. síðustu 2 leiki á milli þessara liða er líklegra en ekki að sú verði raunin….. Það var aldrei nokkur einasta spurning um útkomuna í …

Komnir í undanúrslit eftir sigur á flottu liði Njarðvíkinga

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík vann Njarðvík í kvöld öðru sinni og þar með rimmu liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar, 87-76.   Þessi munur gefur kannski ekki alveg rétta mynd því liðin voru jöfn eftir 3 leikhluta en þá kom væntanlega reynsla og okkar breidd til sögunnar og við sigldum fram úr í lokaleikhlutanum og erum þ.a.l. loksins komnir í gegnum 8-liða …

Aldrei spurning

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík hélt áfram þar sem frá var horfið í Njarðvík um daginn og rúllaði drengjum Frikka og Einars hreinlega upp! Það var allan tímann ljóst í hvað stefndi, slíkir voru yfirburðir Grindvíkinga.  Nokkuð ljóst að ef Kanar Njarðvíkinga fara ekki að gera eitthvað verulega róttækt, að þá endar þessi sería á sunnudaginn í Njarðvík.  Hvorki Camerion Echols né Travis Holmes …