Rútuferð á leikinn á morgun! Því miður náðist ekki að fá spons á rútuferðina á morgun en Körfuknattleiksdeildin getur útvegað rútu og mun kosta 1000 kr í hana. En þá verður líka að fylla rútuna sem tekur 66 manns. Selt verður í hana í dag, samhliða forsölunni á sjálfan leikinn og ef ekki næst nægileg þátttaka, þá verður hætt við …
Rútuferð staðfest og áframhaldandi forsala
Forsalan gekk vel í dag en þó eru miðar eftir og þar sem við ætlum okkur að mæta með sem flesta verður forsölunni haldið áfram á morgun á Olís-bensínstöðinni, frá og með kl. 8 og þar til síðasti miði er seldur! Rútan mun fara en ennþá eru laus sæti í hana og er mikilvægt að fylla hana! Rútan mun birtast …
Myndband af troðslu Bullock
Af mörgum glæsilegum tilþrifum gærkvöldsins var troðsla J’Nathan Bullock með þeim flottari sem sést hefur lengi. Leikbrot var með myndavélina á leiknum í gær og náði henni ágætlega á video Samsett mynd hjá karfan.is nær henni einnig vel.
Myndir frá leiknum
Grindavík er í sviðsljósi íþróttafjölmiðla og fjöldi áhugaverða frétta, viðtala og myndasafna af leiknum í kvöld komið á netið. Fyrst er það tölfræðin hjá KKÍMyndasafn hjá karfan.is þar sem þessi mynd hér að ofan er komin frá. Einnig er þar hægt að sjá þessar flottu myndi af troðslu hjá Ryan og troðslunni hjá Bullock Umfjöllun hjá Karfan.is Viðtal við …
Tvöfaldur sigur í kvöld!
Ég kalla pistil kvöldsins tvöfaldan sigur því bæði unnum við Þórsara inn á vellinum og Gulir Grindjánar höfðu betur gegn Græna dreka Þórsaranna í stúkunni. Meira um það í lok þessa pistils og strax að þessum fyrsta leik sem varð háspennuleikur og endaði 93-89. Staðan því orðin 1-0 fyrir Grindavík en 3 leiki þarf til að lyfta þeim eftirsótta! Grindavík …
FINALS
Á morgun hefst lokabaráttan í Iceland Express deild karla þegar Grindavík og Þór Þorlákshöfn mætast. Þar sem Grindavík er deildarmeistari höfum við heimaleikjaréttinn en svona lítur leikjaplanið út: Leikur 1 í Röstinni Grindavík mánudaginn 23.apríl kl. 19:15 Leikur 2 í Þorlákshöfn fimmtudaginn 26. apríl kl. 19:15 Leikur 3 í Grindavík sunnudaginn 29. apríl kl. 19:15 Leikur 4 ef hans gerist …
Frábær sigur í skugga meiðsla Óla
Grindavík er komið ÚRSLIT Iceland Express deildar karla eftir sigur í hörkuleik á móti Stjörnunni í Garðabænum, 77-79! Því miður urðum við fyrir miklu áfalli þegar Ólafur Ólafsson meiddist illa í fyrri hálfleik og skv. lýsingum á kki, visir.is og mbl.is er ljóst að Óli er ökklabrotinn! Hann var fluttur með sjúkrabíl og er ekki vitað nákvæmlega á þessari stundu, …
Magalending
Enginn fór sópurinn á loft í gærkvöldi svo Teitur er ekkert mættur við grillið sitt eins og Keflvíkingarnir. Grindavík mætti ekki til leiks en það gerðu Stjörnumenn og tóku okkur í kennslustund! Ég er ekkert að fara sérstaklega inn á leikinn sjálfan enda sá ég hann ekki. Þið vitið að þið getið lesið um hann og séð viðtöl inn á …
U-15 landsliðin í körfubolta
Fjórir Grindvíkingar hafa verið valdnir í U-15 landslið sem taka þátt alþjóðlegu móti í byrjun júní. Jón Halldór Eðvaldsson stýrir stúlknaliðinu og hefur hann valið Ingibjörgu Sigurðardóttir í lið sitt. Aðrir leikmenn eru:Dagný Lísa Davíðsdóttir · HamarElfa Falsdóttir · KeflavíkEva Kristjánsdóttir · KFÍHarpa Hrund Einarsdóttir · NjarðvíkIrena Sól Jónsdóttir · Keflavík Karen Dögg Vilhjálmsdóttir · NjarðvíkKristrún Björgvinsdóttir · KeflavíkLaufey Rún Harðardóttir · …
Úrslit hjá yngri flokkum
Um næstu helgi fer fram úrslitakeppnin í 9. flokki stúlkna, 10. flokki drengja, stúlknaflokki og drengjaflokki. Að henni lokinni verður ljóst hverjir eru Íslandsmeistarar í þessum flokkum. Grindavík spilar til undanúrslita í 9.flokki stúlkna, 10. flokki drengja og stúlknaflokki. Leikið verður í Njarðvík bæði föstudag, laugardag og sunnudag og er dagskráin eftirfarandi: Föstudagur 20. apríl 18.00 Drengjaflokkur – undanúrslitaviðureign 1 20.00 …