Grindavík tók Fjarðabyggð í kennslustund

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík og Fjarðabyggð mættust í æfingaleik á Grindavíkurvelli um helgina, en bæði lið leika í Inkasso-deildinni (1. deild) sem hefst núna á föstudaginn næstkomandi. Grindavík hafði mikla yfirburði í leiknum og urðu lokatölur 5-0. Fótbolti.net greindi frá: Grindavík 5 – 0 Fjarðabyggð 1-0 Hákon Ívar Ólafsson 2-0 Hákon Ívar Ólafsson 3-0 Óli Baldur Bjarnason 4-0 Magnús Björgvinsson 5-0 Alexander Veigar …

Inkasso-deildin hefst á föstudaginn – Grindavík spáð 6. sætinu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Vefsíðan fótbolti.net hefur undanfarna daga birt spá þjálfara og fyrirliða í 1. deildinni, sem í ár heitir Inkasso-deildin, og er Grindavík komið á blað en okkur er spáð 6. sætinu í ár. 6. Grindavík Lokastaða í fyrra: 5. sæti í 1. deild Grindvíkingar féllu úr Pepsi-deildinni árið 2012 og eru nú að fara inn í sitt fjórða tímabil í röð …

Grindvíkingar Íslandsmeistarar í 8. fl. kvenna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvíkingar lönduðu enn einum Íslandsmeistaratitlinum í yngri flokkum um helgina þegar stelpurnar í 8. flokki tryggðu sér titilinn hér á heimavelli. Þær sigruðu Keflavík í hreinum úrslitaleik en liðið spilaði mjög vel í vetur og töpuðu aðeins 1 leik af 20. Við óskum stelpunum til hamingju með þennan frábæra árangur, virkilega gaman að sjá hversu margir efnilegir árgangar eru að …

Þrír Íslandsmeistaratitlar í júdó til Grindavíkur um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Íslandsmótið í júdó í flokki 21 árs og yngri fór fram um helgina og þar áttu Grindvíkingar 11 keppendur. Allir keppendur Grindavíkur komust á verðlaunapall og komu heim með 3 Íslandsmeistaratitla, 4 silfur og 4 brons. Tinna Einarsdóttir náði þeim magnaða árangri að verða Íslandsmeistari í flokki drengja U13 -52 kg. Þá sigraði Adam Latkowski í flokki U15 -34 kg …

Úrslitahelgi 8. flokks kvenna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Úrslitakeppni 8. flokks kvenna í körfubolta fer fram um helgina, en Grindavíkur hefur leik í dag kl. 18:00. Grindavík hefur unnið allar törneringar vetursins en nú þarf að klára dæmið og landa titlinum. Við hvetjum Grindvíkinga til að kíkja í íþróttahúsið um helgina og hvetja okkar stelpur áfram. Leiktímar Grindavíkur eru eftirfarandi: Föstudagurinn 29. apríl Kl. 18:00 Grindavík – StjarnanKl. …

Daníel Guðni til Njarðvíkur – tekur við þjálfun meistaraflokks karla

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Þau risatíðindi bárust úr körfuboltaheimum á dögunum að Njarðvíkingar hefðu ráðið Daníel Guðna Guðmundsson til að þjálfa meistaraflokk karla á næsta tímabili. Daníel er uppalinn Njarðvíkingur en hann hefur leikið með Grindavík síðan 2012 og síðastliðið haust tók hann við þjálfun meistaraflokks kvenna. Daníel hlaut því eldskírn sína sem þjálfari í efstu deild í vetur en fer nú eins og …

Stórleikur á Grindavíkurvelli 30. apríl, GG – KFS

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Það verður sannkallaður stórleikur á Grindavíkurvelli núna á laugardaginn, 30. apríl, en þá leika GG menn sinn fyrsta alvöru keppnisleik síðan að liðið var endurvakið í haust. GG mætir til leiks í 4. deild karla í ár sem og í Borgunarbikarnum en þessi leikur er einmitt í bikarnum. Andstæðingarnir eru lið KFS frá Vestmannaeyjum og hefst leikurinn kl. 14:00.  GG …

Rúm vika í Inkasso-deildina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindvíkingar hefja leik í Inkasso-deildinni næstkomandi föstudag, þann 6. maí, þegar Haukar heimsækja Grindavíkurvöll. Af því tilefni hefur Stinningskaldi boðað til stuðningsmannafundar á Bryggjunni annað kvöld þar sem farið verður yfir stöðuna fyrir komandi sumar og stilltir saman strengir.  Á Facebook-síðu Stinningskalda segir: Allir að mæta!!Nú er rétt rúmlega vika í að meistaraflokkur karla hefji leik á Íslandsmótinu. Það er …

Grindvíkingar Íslandsmeistarar í minni bolta stúlkna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvíkingar fögnuðu Íslandsmeistaratitli um helgina þegar stelpurnar í minni bolta (stelpur fæddar 2004-2005) sigruðu Keflvíkinga í úrslitaleik um titilinn. Jafn var á öllum tölum að loknum venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar. Þá var aftur jafnt og því réðust úrslitin með gullkörfu, lokatölur 18-20. Til hamingju með titilinn stelpur! Grindvíkingar hafa haft mikla yfirburði í þessum flokki …

Sigurpáll tók brons um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Judó

Íslandsmót fullorðina hjá Júdósambandi Íslands fór fram á laugardaginn. Sigurpáll Albertsson keppti fyrir hönd Grindavíkur og stóð sig gríðarlega vel og hampaði bronsi í einum erfiðast flokki sem til er í júdó, -90 kg. Til hamingju með þennan frábæra árangur, Sigurpáll!