GRINDAVÍK ER ÍSLANDSMEISTARI! Eftir 16 ára bið tókst Grindavík að landa titlinum með glæsilegum sigri í fjórðu rimmunni gegn Þór í Þorlákshöfn 78-72. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í leikslok og allt ætlaði um koll að keyra. J´Nathan Bullock átti sannkallaðan stórleik í liði Grindavíkur í kvöld en hann skoraði 36 stig í leiknum og tók 8 fráköst. Ósvikin stemmning, þar …
VIÐ ERUM BESTIR! – MYNDASYRPA
Það var fagnað í Grindavík fram undir morgun. Þegar Grindavíkurliðið keyrði heim Suðurstrandarveginn beið múgur og margmenni á Austurvegi skammt við tjaldsvæðið þar sem tugi blysa voru tendruð til heiðurs nýkrýndum Íslandsmeisturum. Gleðin var taumlaus og síðan var haldið á Salthúsið þar sem titlinum var fagnað. Hér má sjá myndir úr ýmsum áttum af fögnuðinum í gærkvöldi. Efsta mynd: Páll …
Glæsileg fjölmiðlaumfjöllun um Íslandsmeistaratitilinn – Samantekt
Í öllum helstu fjölmiðlum landsins er fjallað ítarlega um Íslandsmeistaratitil Grindavíkur í gærkvöldi. Bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið eru með myndir á forsíðu sinni í dag. Þegar er komið eitt skemmtilegt myndband inn á Youtube frá fagnaðarlátum gærkvöldsins þegar liðið kom til Grindavíkur. Hér má sjá samantekt á fjölmiðlaumfjölluninni: Gríðarleg fagnaðarlæti í Grindavík – Víkurfréttir – Myndband frá sigurgleðinni Myndband frá fagnaðarlátunum í …
SVONA Á AÐ FAGNA TITLINUM! – MYNDASYRPA
Íslandsmeistarar Grindavíkur fengu stórkostlegar móttökur þegar þeir komu heim í gærkvöldi eftir að hafa keyrt Suðurstrandaraveginn. Múgur og margmenni safnaðist á Austurvegi við tjaldsvæðið og sprautað var úr slökkvibílum yfir meistarana. Hér er frábær myndasyrpa frá fagnaðarlátunum sem Haraldur H. Hjálmarsson tók. Beðið eftir meisturunum. Spennan magnast. Guðmundur Bragason, fyrirliði meistaraliðsins frá 1996, með son sinn á öxlunum að taka …
ÞEIR SKORA OG SKORA! – MYNDASYRPA
Hér eru fleiri myndir frá fagnaðarlátunum í gærkvöldi þegar Grindavíkurliðið kom með bikarinn heim frá Þorlákshöfn. Sextán ára bið eftir stóra titlinum á enda. Til hamingju Grindvíkingar með þetta frábæra lið! Myndir tók Þorsteinn Gunnar Kristjánsson og þær tala sínu máli.
Petrúnella og Ólöf Helga valdar í A-landsliðið
Tvær Grindavíkurstelpur eru í A landsliði kvenna í körfubolta sem fer á NM í Osló, Noregi, dagana 23.-27. maí nk. Það eru þær Petrúnella Skúladóttir og Ólöf Helga Pálsdóttir sem báðar leika með Njarðvík og urðu Íslands- og bikarmeistarar með liðinu. Petrúnella á 18 landsleiki að baki en Ólöf Helga 3.
Sérfræðingarnir spá Grindavík botnbaráttu
Pepsideild karla í knattspyrnu hefst næsta sunnudag. Grindavík sækir FH heim í fyrstu umferð. Í dag fór fram árlegur spáfundur forráðamanna, þjálfara og fyrirliða liðanna og var Grindavík spáð 9. sæti sem er sama sæti og liðið lenti í á síðustu leiktíð. Fréttablaðið spáir Grindavík einnig 9. sæti, fotbolti.net spáir liðinu 10. sæti líkt og vefurinn 433.is. En spá forráðamanna, …
Myndir frá leiknum
Þorsteinn Gunnar Kristjánsson var með myndavélina á lofti á sigurleiknum í gærkveldi og tók eftirfarandi myndir. Fleiri myndir má sjá á vef Grindavíkur og á vf.is og …
Myndir frá heimkomu leikmanna
Hér má sjá myndir af móttökunni sem Þorsteinn Gunnar tók Fleiri myndir má sjá á grindavik.is
Myndbönd gærkvöldsins
Víkurfréttir hefur tekið saman glæsilegt myndband sem lýsir gærkveldinu vel, sjá myndbandið. Magnús Karl Daníelsson tók einnig upp eftirfarandi video.










