Víkingur – Grindavík í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Það verður toppslagur í 1.deildinni í kvöld þegar Grindavík og Víkingur mætast klukkan 19:15 í Víkinni.  Liðin eru í fyrsta og öðru sæti með 23 og 22 stig. Liðin mættust tvisvar þegar liðin spiluðu síðast saman í efstu deild.  Fóru báðir leikirnir 0-0 í vægast sagt daufum leikjum.  Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og má búast við …

Keflavík 0 – Grindavík 7

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík heldur toppsætinu í 1.deild kvenna, B riðli, eftir stórsigur á Keflavík í gær.  Lokatölur voru 7-0 fyrir Grindavík og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Mörk Grindavíkur skoruðu Dernelle L Mascall (2),  Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Margrét Albertsdóttir (3) og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir. Staðan í B riðli 1.deildarinnar er að Grindavík er með 23 stig í fyrsta sætinu, Höttur í öðru með …

Jafnt á Akureyri

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

KA og Grindavík skildu jöfn í lokaleik fyrri umferðar 1.deild karla.  Leiknum lauk 2-2Grindavík byrjaði leikinn vel og áttu mörg hættuleg færi.  Sandor Matus, markvörður KA, átti góðan leik og kom í veg fyrir að okkar menn voru bara tveimur mörkum yfir eftir 45 mínútur.  Mörk Grindavíkur skoruðu Daníel Leó Grétarsson og Juraj Grizelj. Góður fyrri hálfleikur dugir ekki til því …

Klúbbmeistarar GG

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Davíð Arthur Friðriksson og Gerða Kristín Hammer sigruðu meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur sem fór fram um helgina. Davíð hafði betur gegn Helga Dan Steinssyni í umspili um sigurinn en þeir léku báðir samtals á 293 höggum eða 13 höggum yfir pari. Leiknar voru þrjá holur í umspilinu og hafði Davíð Arthur betur með fugli á þriðju holu í umspilinu. Hávarður Gunnarsson …

Grindavík lagði KR 2-1

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík sigraði sinn fjórða leik í röð í 1.deild kvenna á föstudaginn þegar stelpurnar lögðu KR 2-1. Dernelle L Mascall skoraði bæði mörk liðsins í sitt hvorum hálfleiknum.   Var leikurinn á föstudaginn fyrsti leikur í seinni umferðinni.  Næst fara stelpurnar í Keflavík 18.júlí.  Grindavík er komið með 20 stig eftir 8 umferðir og eru á toppnum í B riðli. …

Sumaræfingar í fullum gangi

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur stendur fyrir metnaðarfullum sumaræfingum nú annað sumarið í röð fyrir þá iðkendur sem hafa áhuga á að bæta sig sem körfuboltaleikmenn. Æfingunum er skipt niður í tvo hópa, annarsvegar iðkendur  11-14 ára og síðan 15 ára og eldri. Stelpur og strákar æfa saman. Yngri hópurinn æfir þrisvar sinnum í viku og eldri hópurinn fjórum sinnum í viku.Hjá eldri …

Grindavík 2 – KF 0

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík heldur sigurgöngu sinni áfram með sigri á KF í gær.  Leikurinn endaði 2-0 með mörkum í fyrri hálfleik.     Leikurinn byrjaði rólega enda spiluðu gestirnir þétta og góða vörn.  Eftir að Alex Freyr Hilmarsson skoraði á 28. mínútu þá opnaðist leikurinn meira.  Matthías Örn Friðriksson bætti marki við átta mínútum seinna og staðan 2-0 í hálfleik.   KF …

Grindavík – KR

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Stelpurnar í mfl. kvenna taka á móti KR á morgun, föstudaginn 12 júlí, í áttundu umferð 1.deild kvenna. Fyrri leikur þessara liða á KR vellinum 4-3.  Grindavík náði þá 4-1 forskoti rétt eftir leikhlé en KR stelpurnar náðu að saxa á muninn. Eru þetta einu stigin sem KR hefur tapað hingað til.   Bæði liðin hafa skorað mikið í síðustu …

Grindavík tekur á móti KF í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Tveir leikir í 1.deild karla fara fram í kvöld.  Selfoss fær Fjölnir í hemsókn en á Grindavíkurvelli mætast Grindavík og KF. Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, KF, var stofnað þegar Héðinsfjarðargöngin sameinuðu Siglufjörð og Ólafsfjörð og tók KF við stafi Leifturs og Knattspyrnufélag Siglufjarðar, KS, árið 2010. Grindavík og KF hafa ekki mæst áður og verður þetta því sögulegur leikur í kvöld. Grindavík …

Grindavík með fimm mörk

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík er komið með 4 stiga forskot í 1.deild kvenna eftir sigur á Völsung á laugardaginn. Staðan var 2-1 í hálfleik en stelpurnar spýttu í lófanna í seinni hálfleiknum og sigruðu 5-2.  Dernelle L Mascall og Margrét Albertsdóttir voru báðar með tvö mörk og svo skoraði Sara Hrund Helgadóttir úr víti á 73. mínútu. Grindavík er því komið með 17 …