Grindavík 2 – KF 0

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík heldur sigurgöngu sinni áfram með sigri á KF í gær.  Leikurinn endaði 2-0 með mörkum í fyrri hálfleik.

 

 

Leikurinn byrjaði rólega enda spiluðu gestirnir þétta og góða vörn.  Eftir að Alex Freyr Hilmarsson skoraði á 28. mínútu þá opnaðist leikurinn meira.  Matthías Örn Friðriksson bætti marki við átta mínútum seinna og staðan 2-0 í hálfleik.  

KF gerðu tvöfalda skiptingu strax við upphaf seinni hálfleiks og komu framar á völlinn.  Okkar menn voru samt ennþá með leikinn í sínum höndum, spiluðu yfirvegað og lönduðu þremur góðum stigum.

Grindavík er komið með 4 stiga forskot í deildinni en liðin í næstu sætum eiga leik inni sem fer fram í kvöld. Haukar fara á Sauðárkrók og Víkingur á Húsavík.

Næsti leikur Grindavíkur er gegn KA 16.júlí