Grindvíkingar tóku á móti Haukum á Grindavíkurvelli í gær í leik sem þróaðist heldur dapurlega fyrir heimamenn. Eftir góða byrjun þar sem Alex og Jósef komu okkar mönnum 2-0 yfir fór að fjara hægt og rólega undan leik okkar manna. Tomislav Misura fékk fínt færi til að breyta stöðunni í 3-0 en brenndi af og þriðja markið í leiknum var …
Sigurvegarar Costa Blanca Cup heiðraðir
Í hálfleik í leik Grindavíkur og Hauka í gær voru leikmenn 3. flokks kvenna heiðraðir en þessi glæsilegi hópur fór með sigur af hólmi á Costa Blanca mótinu á Spáni á dögunum. Það voru þeir Róbert Ragnarson bæjarstjóri og Grétar Valur Schmidt formaður ungmennaráðs sem færðu stelpunum þakklætisvott frá UMFG og bæjarbúum. Við óskum þessum efnilegu stúlkum til hamingju með …
Mikilvægur leikur á Grindavíkurvelli í kvöld – Haukar koma í heimsókn
Í kvöld fer fram afar mikilvægur leikur á Grindavíkurvelli þar sem Grindavík mun taka á móti Haukum í 1. deild karla í knattspyrnu. Mikill stígandi hefur verið í leik Grindavíkurliðsins í undanförnum leikjum og stigin safnast hratt í sarpinn. Má segja að í kvöld sé komið að ögurstundu þar sem skorið verður úr um hvort að liðið muni blanda sér …
Tvö mörk beint úr hornspyrnu á móti sama liðinu
Eins og við greindum frá á mánudaginn þá skoraði Jósef Kristinn Jósefsson mark gegn Fjarðabyggð núna um helgina beint úr aukaspyrnu. Slík mörk eru ekki mjög algeng en á Fótbolta.net í gær var það rifjað upp að þetta er í annað skiptið í ár sem Jósef skorar slíkt mark og það gegn sama liði! Í samtali við Fótbolta.net sagði Jósef …
Glötuð stig í Grafarvogi
Stelpurnar okkar heimsóttu Grafarvoginn um helgina þar sem heimastúlkur í Fjölni tóku á móti þeim. Fyrir leikinn voru Fjölnisstúlkur næst neðstar í deildinni með 4 stig en Grindvíkingar á toppnum með 19 stig og aðeins búnar að tapa stigum einu sinni í sumar þegar þær gerðu jafntefli við Víking á útivelli. Sigur í þessum leik hefði styrkt stöðu Grindavíkur á …
Góður sigur fyrir austan og Grindavík klifrar upp töfluna
Eftir fremur rysjótta byrjun á fótboltasumrinu hjá strákunum í 1. deildinni hefur liðið tekið hressilega við sér og stigin tekið að safnast í sarpinn í síðustu leikjum. Í gær hélt liðið austur á firði þar sem lið Fjarðabyggðar var sótt heim á Eskjuvelli á Eskifirði. Þegar liðið mættust í Grindavík í vor fóru Austfirðingar með 1-3 sigur af hólmi og …
Skrifað undir hjá körfunni – Íris Sverris komin heim
Á dögunum skrifuðu nokkrir leikmenn undir samninga við Körfuknattleiksdeild Grindavíkur. Ber þar hæst að Íris Sverrisdóttir hefur tekið fram skóna á ný og snýr aftur heim til Grindavíkur eftir að hafa leikið síðast með Haukum. Þá skrifaði Daníel Guðni Guðmundsson formlega undir sinn samning en hann mun þjálfa liðið næstu tvö ár og jafnframt spila með karlaliðinu. Þá skrifuðu 3 …
Toppslagur á Grindavíkurvelli í kvöld þegar FH kemur í heimsókn
Það verður sannkallaður toppslagur í 1. deild kvenna á Grindavíkurvelli í kvöld kl. 20:00 en þá mætast lið Grindavíkur og FH. Grindavík er á toppi B riðils 1. deildar með 16 stig og FH-ingar eru svo í öðru sæti með 15 en einu stigin sem FH hefur tapað í sumar voru einmitt í tapleik á móti Grindavík í Kaplakrika. Búast …
Scott Ramsay kvaddi Grindavík með sigri
Scott Ramsay lék sinn síðasta leik fyrir Grindavík í sumar í gærkvöldi þegar hann kom inná sem varamaður gegn KA og lagði upp sigurmarkið. Scotty sem verður fertugur í haust hefur því að öllum líkindum leikið sinn síðasta keppnisleik í gulu treyjunni en hann mun leika með Reyni frá Sandgerði í 2. deildinni það sem eftir lifir sumars. Scott Ramsay …
Skráning hafin á Unglingalandsmót UMFÍ
Skráning á 18. Unglingalandsmót UMFÍ, sem fram fer á Akureyri um verslunarmannahelgina, hófst mánudaginn 6. júlí. Þetta verður í fyrsta skipti sem Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið þar. Mótið hefst fimmtudaginn 30.júlí og mótsslit eru um miðnætti á sunnudagskvöldi. Búist er við fjölmennu móti á Akureyri að þessu sinni enda eru fleiri keppnisgreinar en nokkru sinni áður. Á Akureyri er gríðarlega …