Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar UMFG

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG verður miðvikudaginn 16. maí nk. kl. 20:00 í aðstöðu deildarinnar í útistofu við grunnskólann.  Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir áhugasamir um grindvískan körfuknattleik eru hvattir til að mæta. Stjórn kkd.umfg

Fyrsti heimaleikurinn

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Fyrsti leikurinn á Grindavíkurvelli í sumar fer fram í kvöld þegar okkar menn taka á móti Keflavík. Þessir leikir hafa jafnan verið skemmtilegir og vel sóttir.  Í síðustu umferð var slegið met í fjölda áhorfenda og voru m.a. rúmlega 1.500 manns á Kaplakrika þar sem Grindvíkingar voru fjölmennir.  Höldum því áfram og færum stemminguna frá körfuboltanum yfir í fótboltastúkuna. Bæði …

Vonbrigði í fyrsta heimaleik

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Lítið er hægt að segja um þennan fyrsta heimaleik Grindavíkur í ár.  0-4 tap í einhverjum daprasta leik sem okkar menn hafa sýnt á Grindavíkurvelli. Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu frá því í fyrstu umferð.  Alexander Magnússon og Jordan Edridge inn fyrir Óla Baldur og Ray. Byrjunarliðið var því skipað Óskari, Loic, Ólafi Erni, Jósef, Scotty, Matthías, Gavin, Alexander, …

Helgi Jónas hættir með Íslandsmeistarana

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Helgi Jónas Guðfinnsson tilkynnti stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í gær að hann óski eftir að hætta störfum með liðið sökum anna í vinnu sinni. Aðilar skilja í mesta bróðerni en gífurleg ánægja var með störf Helga og árangurinn á þessu tímabili auðvitað hreint út sagt stórkostlegur þar sem sjálfur Íslandsmeistaratitillinn var rúsínan í pylsuendanum.   Stjórn kkd.umfg óskar Helga Jónasi alls hins …

Lokahófsmyndband Íslandsmeistaranna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Íslandsmeistarar Grindavíkur héldu lokahóf sitt um helgina eins og lesa má um hér. Á hófinu var Egill Birgisson mættur með fartölvuna og skjávarpann og setti saman skemmtilegt myndband frá vetrinum en sjá má myndbandið með því að smella hér.

Ingvar og Hávarður unnu golfmót helgarinnar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Opna Veiðarfæraþjónustan-mótið fór fram á Húsatóftavelli í dag og tóku alls 38 sveitir þátt í mótinu. Nokkuð hvasst var í Grindavík og sást það berlega á skorinu. Það var sveit 2 amigos skipuð þeim Hávarði Gunnarssyni og Ingvari Guðjónssyni, félögum úr GG, sem fóru með sigur af hólmi í mótinu. Þeir léku á 65 höggum nettó og urðu einu höggi …

Sverrir Þór Sverrisson tekur við karlaliði Grindavíkur!

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Grindavík var ekki lengi að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara eftir að Helgi Jónas Guðfinnsson tilkynnti að hann gæti ekki þjálfað liðið áfram.  Sá sem varð fyrir valinu er nýkrýndur tvöfaldur meistari kvennaliðs Njarðvíkur, Sverrir Þór Sverrisson. Í stuttu spjalli við heimasíðuna lét Sverrir hafa þetta eftir sér: „Ég er gríðarlega spenntur að taka við nýkrýndum Íslandsmeisturum Grindavíkur.  Ég …

Glæsilegur árangur á fimleikamóti á Laugarvatni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Þann 4. maí sl. fóru 17 krakkar á aldrinum 11-15 ára á sitt fyrsta fimleikamót. Haldið var á Laugarvatn þar sem fjögur önnur lið í sambærilegum stærðar- og getuflokki kepptu á trampólíni og loftdýnu. Krakkarnir skemmtu sér frábærlega og ekki skemmdi fyrir að þau unnu 4 gull, 3 silfur og 5 brons.    Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn með …

Aðalfundur UMFG

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Aðalfundur UMFG verður haldinn í aðstöðu Ungmennafélagsins í útistofu við grunnskóla Grindavíkur mánudaginn 14. maí kl 20:00     Dagskrá fundarins: Skýrsla formanns Lagðir fram reikningar Umræður um skýrslu og reikninga Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga Önnur mál. Stjórnin  

Aðalfundur KörfuknattleiksdeildarUMFG

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG verður haldinn í aðstöðu Ungmennafélagsins í útistofu við grunnskóla Grindavíkur þriðjudaginn 15. maí kl 20:00 Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf