Grindvíkingar sigursælir á jólaskámóti Samsuð og Krakkaskákar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Glæsilegt Jólaskákmót var haldið í fimmta sinni á vegum Samsuð og Krakkskákar laugardaginn 17. desember síðastliðinn. Mótið var haldið í Gerðaskóla og 48 keppendur mættu til leiks. Þeir voru úr flestum bæjarfélögum á Suðurnesjum. Grindvíkingar, Njarðvíkingar og Garðbúar voru fjölmennastir þátttakanda. Skemmst er frá því að segja að Grindvíkingar tóku efsta sætið í öllum flokkum nema flokki eldri pilta en …

Emma og Lauren áfram með Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Kvennaráð knattspyrnudeildar UMFG endurnýjaði samninga við tvo lykilleikmenn síðastliðinn föstudag en þá skrifuðu þær Emma Higgins og Lauren Brennan undir nýja samninga og leika því með liðinu í Pepsi-deildinni að ári. Emma Higgins kom fyrst til Grindavíkur sumarið 2010 og hefur leikið 93 leiki á Íslandi, 86 þeirra með Grindavík, en hún lék með KR sumarið 2012. Hún er einnig …

Sam Hewson til Grindavíkur (staðfest)

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnudeild UMFG gekk í gær frá samningum við hinn enska Saw Hewson, en Sam hefur leikið með FH undanfarin ár. Þar áður lék hann með Fram en er uppalinn í unglingaliði Manchester United og er því annar leikmaður Grindavíkur úr United á eftir Lee Sharpe. Hann er jafnframt annar leikmaður FH sem gengur til liðs við Grindavík á þessu ári.  …

Grindavík í 4. sæti yfir jólin

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavík fer heldur betur með góðan jólapakka með sér í jólafrí frá Domino’s deild karla þessi jólin en þegar deildin er hálfnuð situr Grindavík í 4. sæti deildarinnar. Okkar menn unnu góðan útisigur á Skallagrímsmönnum í Borgarnesi í gær, 80-95, og hafa nú unnið 7 leiki en tapað 4.  Karfan.is gerði leiknum skil: „Grindavík verður í fjórða sæti Dominos deildar …

Stuðningsmaður ársins 2016

Ungmennafélag GrindavíkurFimleikar, Íþróttafréttir, Judó, Knattspyrna, Körfubolti, Skotdeild, Sund, Taekwondo, UMFG

Nú óskum við hjá UMFG eftir tilnefningu á stuðningsmanni/konu ársins, Stuðningsmaður ársins getur verið sá einstaklingur sem hefur stutt við bakið á grasrótarstarf íþróttahreyfingarinnar með einum eða öðrum hætti.  Allir geta tekið þátt i kosningunni með því að senda tölvupóst á kosning@umfg.is  í síðasta lagi fimmtudaginn 22.des 2016  Bræðurnir Guðni og Guðlaugur Gústafssynir voru heiðraðir sem stuðningsmenn árið 2015. 

Glötuð stig í Grindavík um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavíkurkonur misstu af dauðafæri til að vinna sig upp töfluna um helgina þegar þær töpuðu fyrir Val hér í Grindavík, 66-69. Allt leit út fyrir að Valur færi með þægilegan sigur af hólmi en Grindvík gerði harða atlögu að þeim í lokin. Þær komust þó ekki nær en 3 stig og lokaniðurstaðan svekkjandi tap og Grindavík áfram í næst neðsta …

Firmamótið 30 ára

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Hið fjöruga og skemmtilega Firmamót verður haldið í 30. skipti þann 30. desember næstkomandi í íþróttahúsi Grindavíkur.Mótið er haldið af liði GG og er leikið með battaboltafyrirkomulagi. Í tilefni þess að firmamótið er haldið í 30. skipti þá verður verðlaunað, eins og hefbundið er, fyrir 1, 2 og 3 sæti en einnig verður verðlaunað fyrir besta leikmann, skemmtilegasta leikmann og …

Þristaregn frá Þorsteini dugði ekki til sigurs gegn Stólunum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavík tók á móti Tindastóli í Domino’s deild karla í Mustad höllinni í gærkvöldi. Stólarnir hafa verið með sterkari liðum í vetur og höfðu aðeins tapað tveimur leikjum fyrir viðureign gærkvöldsins og því ljóst að um hörkuviðureign yrði að ræða. Grindavík var með nokkuð tök á leiknum framan af en gestirnir sigu fram úr í lokin og unnu að lokum, …

Ótrúlegur viðsnúningur á lokamínútunum tryggði Grindavík sigur á ÍR

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavík er komið í 8-liða úrslit Maltbikarsins eftir ótrúlegan seiglusigur á ÍR í Mustad höllinni í gær. Gestirnir voru með yfirhöndina nær allan leikinn og leiddu 65-75 þegar rúmar 7 mínútur voru til leiksloka en þá tók við ótrúlegur kafli þar sem Grindavík skoraði 10 stig án þess að ÍR næðu að svara fyrir sig og staðan 75-75. Karfan.is fjallaði …

Dregið í 8-liða úrslit Maltbikarsins

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit Maltbikarsins þar sem Grindvíkurliðin voru bæði í hattinum. Stelpurnar fá verðugt verkefni og Suðurnesjaslag en þær mæta Keflavík hér í Mustad höllinni. Strákarnir aftur á móti þurfa að leggja land undir fót og fara í höfuðstað Norðurlands þar sem þeir mæta Þórsurum á Akureyri.  Leikið verður dagana 14.-16. janúar.