Búningasala körfuknattleiksdeildar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Búningasala körfuknattleiksdeildar verður í Gjánni, fimmtudaginn 3.okt 2019 kl 18:00  búningarnir eru frá Errea  keppnis sett = 10.500.-kr Keppnistreyja= 7000.- kr Stuttbuxur= 3500.- kr  Hettupeysa = 6500.- kr  nafnamerking á hettupeysu = 500.- kr   

Benóný Þórhallsson nýr yfirþjálfari yngri flokka

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Í gær var skrifað undir samning við nýjan yfirþjálfara yngri flokka UMFG í knattspyrnu. Það var unglingaráði sönn ánægja að tilkynna að Grindvíkingurinn Benóný Þórhallsson, Binni, muni taka við því starfi. Á Facebook síðu deildarinnar var Binni borðinn hjartanlega velkominn aftur heim til Grindavíkur eftir að hafa verið hjá Sindra á Höfn í Hornafirði sem yfirþjálfari yngri flokka síðustu 2 ár. Deildin býður …

Rúnar Sigurjónsson sæmdur gullmerki KSÍ

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Á dögunum var Rúnar Sigurður Sigurjónsson sæmdur gullmerki KSÍ. Það gerði æskuvinur hans, Ingvar Guðjónsson þann 30. ágúst síðastliðinn þegar þeir félagar héldu sameiginlega upp á 50 ára afmælin sín í íþróttahúsinu. Veislan fór fram að viðstöddu fjölmenni en báðir hafa þeir Rúnar og Ingvar unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu knattspyrnunnar hér í Grindavík.  Það var Knattspyrnudeild Grindavíkur …

Lokahóf yngri flokka framundan

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur ætlar að fagna sigrum sumarsins ásamt iðkendum sínum en framundan eru lokahóf yngri flokka. Miðvikudaginn næstkomandi, þann 11. september munu iðkendur 5., 6. og 7. flokks hittast í Hópinu frá kl. 17:00 – 18:00. Í boði verða pylsur og knattþrautir. Daginn eftir eða fimmtudaginn 12. september koma iðkendur í 3. og 4. flokki saman kl. 17:00 á sal …

Knattspyrnuþjálfarar óskast til starfa

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Unglingaráð Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir að ráða þjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Leitað er eftir einstaklingum með brennandi áhuga á knattspyrnuþjálfun.  Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af þjálfun barna og/eða unglinga.  Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði eru kostir sem nýtast vel í þessu starfi.  Umsóknir og spurningar berast til Ragnheiðar Þóru formanns unglingaráðs. anton@simnet.is eða í síma 865-5218

Jóhann Dagur og Sigurður Bergmann bikarmeistarar í sínum flokki í hjólreiðum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Fyrr í sumar fór fram hjólreiðahátíð á Akureyri þar sem Grindvíkingar áttu tvo fulltrúa í götuhjólreiðum. Einn hluti hátíðarinnar er gangamótið í hjólreiðum sem jafnframt er síðasta bikarmótið í greininni í ár. Tvö fyrstu voru haldin á Suðunesjum. Það fyrsta með rásmark og mark í Sandgerði og hitt í Grindavík. Þegar stigin voru talin þá varð ljóst að báðir Grindvíkingarnir sem hafa …

Jóhann Dagur keppir með U19 landsliðinu í hjólreiðum á Evrópumótinu í Hollandi

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Í síðustu viku var Jóhann valinn í landslið U19 sem er nú á Evrópumótinu í hjólreiðum sem fer fram í Alkmaar í Hollandi dagana 7-11 ágúst. Í þessu sama móti munu keppa sterkustu hjólreiðamenn heims og margir sem tóku þátt í Tour de France, sem er ein þekktasta hjólreiðakeppni heims sem er nýliðin og til að nefna einhver nöfn þá verða þarna Peter …

Grindavík mætir Augnabliki í kvöld kl. 19:15

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík mætir Augnabliki í 10. umferð Inkasso deildar kvenna í kvöld. Grindavík situr í 8. sætir deildarinnar en það hefur ekki gengið nægilega vel síðustu þrjá leiki sem allir hafa tapast. Grindavík keppti fyrsta leik mótsins við Augnablik fyrr í sumar en þá töpuðu þær 3-1. Þær eiga því harm að hefna i kvöld. Augnablik er í 6. sæti deildarinnar, …

Heimaleikur á móti ÍA í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík tekur á móti Skagaliðinu ÍA í kvöld í Pepsí Max-deild karla í kvöld kl. 19:15. Þetta er þrettánda umferðin í deildinni en Grindavík situr í 9. sæti deildarinnar með 12 stig en Skagamenn eru í því 3ja með 20 stig.