Knattspyrnuþjálfarar óskast til starfa

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Unglingaráð Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir að ráða þjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Leitað er eftir einstaklingum með brennandi áhuga á knattspyrnuþjálfun. 

Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af þjálfun barna og/eða unglinga. 

Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði eru kostir sem nýtast vel í þessu starfi. 

Umsóknir og spurningar berast til Ragnheiðar Þóru formanns unglingaráðs. anton@simnet.is eða í síma 865-5218