Nýliðar Grindavíkur tryggðu veru sína í Pepsi-deild kvenna að ári þegar þær sóttu stig í Hafnarfjörðinni í gær. Leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem markvörður Grindavíkur, Viviane Domingues, fékk heldur betur að vinna fyrir kaupinu sínu. Á sama tíma tapaði Fylkir fyrir KR og þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu er því ljóst að Fylkir fylgir Haukum niður í …
Er þitt fyrirtæki rétt skráð í leikjaskrá körfuknattleiks-deildarinnar?
Undirbúningur fyrir útgáfu leikjaskrá körfuknattleiksdeildar UMFG er nú á fullu skriði en leiktímabilið hefst í byrjun október. Þjónustuaðilar í Grindavík er beðnir um að athuga sérstaklega sína skráningu og senda uppfærslur eða leiðréttingar ef einhverjar eru á Sigurbjörn Dagbjartsson á póstfangið sigurbjornd@gmail.com. Leikjaskrá síðasta tímabils má finna hér að neðan. Leikjaskrá körfuknattleiksdeildar UMFG 2016-2017
Þorsteinn Finnbogason kom sá og sigraði í Finnlandi
Þrátt fyrir að það gangi lítið upp hjá landsliði Íslands í körfubolta á Evrópumótinu í Finnlandi þá er Þorsteinn Finnbogason, aka Togarinn, aka Vélin, leikmaður Grindavíkur, heldur betur að slá í gegn. Þorsteinn er að vísu ekki í liðinu en í hálfleik í leik Íslands og Slóveníu gerði Þorsteinn sér lítið fyrir og vann skotkeppni á milli stuðningsmanna þjóðanna. Þorsteinn …
Sara Hrund Helgadóttir tekur sér frí frá fótboltanum vegna höfuðmeiðsla
Sara Hrund Helgadóttir, sem undanfarin ár hefur verið einn af máttarstólpum meistaraflokks kvenna í knattspyrnu ásamt því vera fyrirliði kvennaliðs University of West Florida, hefur tekið sér tímabundið hlé frá knattspyrnuiðkun vegna síendurtekinna höfuðmeiðsla. Hún greinar frá ákvörðuninni á Facebook-síðu sinni en Sara rotaðist í leik gegn ÍBV á dögunum og uppskar sinn 6. heilahristing á 8 árum. Sara segist …
Páll Guðmundsson spilaði sinn 100. leik fyrir Þrótt í Vogum
Grindvíkingurinn Páll Guðmundsson lék á dögunum sinn 100. leik fyrir Þrótt í Vogum, en hann er annar leikmaður liðsins frá upphafi sem rýfur 100 leikja múrinn. Páll hefur leikið með Þrótti frá 2013 en hann var einn af fjölmörgum Grindvíkingum sem fylgdi Þorsteini Gunnarssyni til Voga þegar Þorsteinn tók við þjálfun liðsins. Á Facebook-síðu Þróttar er talað um að Vogamenn …
Æfingatöflur körfuknattleiksdeilda UMFG klárar
Æfingatöflur körfuknattleiksdeildar UMFG hafa nú verið birtar hér á vefsíðunni, þó með fyrirvara um breytingar. Æfingatöflurnar má sjá með því að smella hér. Þá má einnig nálgast upplýsingar um þjálfara deildarinnar hér.
Stelpurnar lágu heima gegn Völsurum
Þrátt fyrir ágæta spretti þá tókst Grindavíkurkonum ekki að sækja stig gegn Valskonum á Grindavíkurvelli í gær. Markalaust var í hálfleik en Valur gerði útum leikinn með þremur mörkum í seinni hálfleik án þess að Grindavík næði að svara, lokatölur 0-3. Eftir þennan leik er Grindavík í 7. sæti deildarinnar með 14 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Í 9. …
Íþróttaskóli UMFG – skráning hafin
Íþróttaskóli UMFG hefst laugardaginn 2. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn á leikskólaaldri sem vilja auka hreyfigetu, jafnvægi, styrk, úthald og boltafærni. Salnum er skipt í tvö aldurskipt æfingasvæði. Í öðrum salnum er áhaldahringur þar sem börnin gera ýmsar æfingar og í hinum salnum er notast við bolta og ýmsar þrautir. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu alla laugardaga kl 10:00-10:40 og …
Tveir fyrrum leikmenn Grindavíkur í fámennum úrvalshópi
Samkvæmt óformlegri* tölfræðirannsókn sem vefsíðan Fúsíjama TV lagði í þá eru aðeins 4 leikmenn í sögu efstu deilda í körfuknattleik á Íslandi sem hafa náð þeim fágæta áfanga að afreka fjórfalda tvennu í leik. Tveir af þessum leikmönnum eru fyrrum leikmenn Grindavíkur, þau Penni Peppas og Brenton Birmingham. Eru þau jafnframt fyrstu tveir leikmennirnir sem komust í þennan fámenna hóp. …
Grindavík og KR skildu jöfn í Evrópuslagnum
Grindavík tók á móti KR í Pepsi-deild karla í gær en liðið eru í harðri baráttu Evrópusæti í deildinni. Fyrir leikinn var Grindavík í 4. sæti en KR í því 5. aðeins 2 stigum á eftir Grindavík og því mikið undir á Grindavíkurvelli í gær. Bæði lið fóru nokkuð varfærnislega af stað en KR komst að lokum yfir 0-1 en …