Grindavík hefur fengið tvo leikmenn til liðs við sig frá Þórsurum á Akureyri, þá Jóhann Helgi Hannesson og Orra Frey Hjaltalín. Báðir leikmenn voru samningslausir og koma því á frjálsri sölu til Grindavíkur. Jóhann Helgi er 27 ára og hefur leikið allan sinn feril leikið með Þór en hann hefur skorað 61 mark í 207 deildar og bikarleikjum með félaginu …
Tvö slæm töp hjá strákunum um helgina
Það var heldur rýr uppskeran hjá Grindavík í Domino’s deild karla um helgina, en liðið tapaði í Njarðvík á föstudaginn og svo aftur á heimavelli í gær, þá gegn Stjörnunni. Afleitir leikkaflar í báðum leikjum urðu liðinu að falli að þessu sinni. Í þriðja leikhluta gegn Njarðvík skoraði liðið aðeins 14 stig gegn 30 stigum heimamanna. í leiknum í gær …
Grindavíkurkonur völtuðu yfir Ármann
Grindavík vann góðan sigur á Ármann í 1. deild kvenna á laugardaginn, en leiknum lauk með rúmlega 30 stiga sigri Grindavíkur, lokatölur 73-42. Spilandi þjálfari Grindavíkur, Angela Rodriguez, lék ekki með Grindavík en það kom lítið að sök að þessu sinni. Nýjasti leikmaður Grindavíkur, Anna Ingunn Svansdóttir, var stigahæst Grindvíkinga með 24 stig og þá skilaði Embla enn einni þrennunni, …
Samningar við stærstu bakhjarla körfuknattleiksdeildarinnar endurnýjaðir
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur endurnýjaði samninga sína við fjóra af aðalstyrktaraðilum deildarinnar, útgerðirnar Þorbjörn og Vísi, sem og Landsbankann og Nettó. Ef það væri ekki fyrir stuðning þessara öflugu fyrirtækja þá er ljóst að róður deildarinnar væri þungur. Er þessum fyrirtækjum þakkað kærlega fyrir stuðninginn! Samningurinn við Nettó var undirritaður í hálfleik í leik Grindavíkur og KR á dögunum. Brynja Pálsdóttir, verslunarstjóri …
Samningar við stærstu bakhjarla körfuknattleiksdeildarinnar endurnýjaðir
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur endurnýjaði samninga sína við fjóra af aðalstyrktaraðilum deildarinnar, útgerðirnar Þorbjörn og Vísi, sem og Landsbankann og Vísi. Ef það væri ekki fyrir stuðning þessara öflugu fyrirtækja þá er ljóst að róður deildarinnar væri þungur. Er þessum fyrirtækjum þakkað kærlega fyrir stuðninginn! Samningurinn við Nettó var undirritaður í hálfleik í leik Grindavíkur og KR á dögunum. Brynja Pálsdóttir, verslunarstjóri …
Björn Lúkas tók silfrið á heimsmeistaramóti áhugamanna í MMA
Bardagakappinn Björn Lúkas Haraldsson fór eins og stormsveipur í gegnum heimsmeistaramót áhugamanna í MMA og það var ekki fyrr en í úrslitabardaganum sem hann mætti ofjarli sínum og varð að játa sig sigraðan. Björn og Svíinn Khaled Laallam tókust á í þrjár lotur og vann Khaled að lokum á dómaraúrskurði, sem Björn sagði að hefði verið sanngjörn niðurstaða. Björn Lúkas …
Dagur Kár í viðtali hjá Víkurfréttum
Dagur Kár Jónsson, leikmaður Grindavíkur í körfuboltanum, er í léttu og skemmtilegu viðtali á vefsíðu Víkurfrétta í dag. Dagur er mjög bjartsýnn á gengi Grindavíkur í vetur og gerir ekki ráð fyrir öðru en að liðið geri harða atlögu að titlinum í ár. Þá greinir hann líka frá því að bræður hans séu mjög tapsárir og því sé mjög gaman …
Nágrannaslagur í Ljónagryfjunni í kvöld kl. 20:00
Grindvíkingar sækja Njarðvíkinga heim í Ljónagryfjuna í kvöld í sannkölluðum nágrannaslag. Okkar menn vilja eflaust hefna fyrir bikartapið í Njarðvík á dögunum og má búast við hörkuleik þar sem bæði lið eru á góðu skriði í deildinni. Leikurinn hefst kl. 20:00 og verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
Björn Lúkas í úrslit
Bardagakappinn og Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson keppir þessa dagana á heimsmeistaramótinu áhugamanna í MMA í Bahrain. Það eru engar ýkjur þegar við segjum að Björn hafi farið mjög vel af stað á þessu móti en hann hefur keppt fjórum sinnum á fjórum dögum og klárað alla sína bardaga í 1. lotu. Hann er því kominn í úrslit sem fara fram …
Jón Axel leikmaður vikunnar í háskólaboltanum
Tímabilið byrjar vel hjá Jóni Axel Guðmundssyni í bandaríska háskólaboltanum en hann var valinn leikmaður vikunnar í liðinni viku. Jón átti fantagóðan leik í sigri Davidson skólans á Charleston Southern, 110-62, og var hárbreidd frá því að næla sér í þrefalda tvennu. Jón skoraði 24 stig, tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar og kórónaði svo sína frammistöðu með því …