Samningar við stærstu bakhjarla körfuknattleiksdeildarinnar endurnýjaðir

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur endurnýjaði samninga sína við fjóra af aðalstyrktaraðilum deildarinnar, útgerðirnar Þorbjörn og Vísi, sem og Landsbankann og Nettó. Ef það væri ekki fyrir stuðning þessara öflugu fyrirtækja þá er ljóst að róður deildarinnar væri þungur. Er þessum fyrirtækjum þakkað kærlega fyrir stuðninginn!

Samningurinn við Nettó var undirritaður í hálfleik í leik Grindavíkur og KR á dögunum. Brynja Pálsdóttir, verslunarstjóri Nettó, og Lórenz Óli Ólason, formaður kkd. UMFG, skrifuðu undir.