Okkar konur fara nú inn í landsleikjahlé í Domino’s deild kvenna á botni hennar, en þær töpuðu illa fyrir Keflavík um helgina, 84-66. Grindavík sá aldrei til sólar í þessum leik og munu væntanlega nýta hléið vel til að stilla saman strengi undir stjórn nýs þjálfara, Bjarna Magnússonar. Karfan.is fjallaði um leikinn: Keflavík tók á móti nágrönnum sínum í Grindavík …
Grindavík í 3. sætið eftir sigur á Njarðvík
Grindavík tók á móti Njarðvík í sannkölluðum nágrannaslag á fimmtudaginn. Leikurinn var nokkuð jafn en Grindavík þó alltaf skrefi framar og lönduðu að lokum góðum sigri, 95-83. Með þessum sterka sigri tyllti Grindavík sér í 3. sæti deildarinnar með 4 sigra í fyrstu 6 leikjum deildarinnar. Hinn mikli meistari Jón Björn Ólafsson mætti á leikinn fyrir hönd karfan.is og gerði …
Tap á Ásvöllum í jöfnum leik
Grindavíkurkonur gerðu sér ekki ferð til fjár í Hafnarfjörðinn í gær þegar þær töpuðu fyrir Haukum, 65-58. Leikurinn var í járnum nánast fram að 39. mínútu þegar Haukar sigu fram úr og sigldu sigrinum heim. Úrslitin þýða að Grindavík situr nú á botni deildarinnar ásamt Val, með 2 sigra í 8 leikjum. Karfan.is var á staðnum: Haukar unnu góðan liðssigur …
Ingibjörg og Embla fulltrúar Grindavíkur í landsliðshópnum
Framundan í nóvember eru tveir síðustu landsleikirnir í undankeppni EM, EuroBasket kvenna 2017, hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik. Ívar Ásgrímsson, þjálfari, og Bjarni Magnússon, aðstoðarþjálfari, hafa valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga. Grindavík á tvo fulltrúa í hópnum, þær Ingibjörgu Jakobsdóttur og Ingunni Emblu Kristínardóttur. 15 manna æfingahópur Íslands: Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell · 6 …
Nágrannaslagur í kvöld – Njarðvík í heimsókn
Það verður sannkallaður nágrannaslagur í Mustad-höllinni í kvöld þegar Njarðvík mætir í heimsókn í Domino’s deild karla. Víkurfréttir tóku Lalla tali í dag sem var hóflega bjartsýnn fyrir leikinn og sagði að Njarðvíkingar væru til alls líklegir enda í sárum eftir síðasta leik og eflaust þyrstir þá í sigur. „Við þurfum að mæta tilbúnir til að vinna þennan leik. Þeir …
Jón Axel fer vel af stað með Davidson háskólanum
Jón Axel Guðmundsson fer vel af stað með liði sínu hjá Davidson háskólanum í bandaríska háskólaboltanum. Jón var í byrjunarliðinu í fyrsta leik, skoraði 13 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á aðeins 23 mínutum. Lokatölur leiksins urðu 104-58, Davidson í vil. Tölfræði leiksins má lesa hér. Jón var í nokkuð ítarlegu viðtali hjá Karfan.is á dögunum sem …
Grindavík mætir ÍR í 16-liða úrslitum Maltbikarsins
Dregið var í 16-liða úrslit Maltbikarsins karlamegin í dag og fengu Grindvíkingar heimaleik gegn ÍR-ingum. Er þetta einn af þremur úrvalsdeildarslögum umferðarinnar. Leikið verður dagana 4. og 5. desember en ekki er búið að raða leikjunum nánar niður. Viðureignir í 16-liða úrslitum eru eftirfarandi: Njarðvík-b · HötturKeflavík · Þór ÞorlákshöfnValur · SkallagrímurFSu · SindriGrindavík · ÍRHaukar · Haukar-bÞór Akureyri · …
Stelpurnar lögðu laskað lið Njarðvíkur
Grindavíkurkonur unnu góðan bikarsigur í gær þegar þær lögðu lið Njarðvíkur í Maltbikaranum, 85-70. Njarðvíkingar urðu fyrir áfalli snemma í leiknum þegar Carmen Tyson varð fyrir meiðslum og gat ekki klárað leikinn. Carmen hefur farið hamförum með liðinu í vetur og hefur verið að skora tæp 39 stig í leik og taka 16 fráköst. Gestirnir lögðu þó ekki árar í …
Grindavík sigraði Stjörnuna í dramatískum háspennuleik
Grindavík er komið áfram Maltbikarkeppni karla eftir 86-82 sigur á Stjörnunni í hádramatískum leik þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunum. Lewis Clinch tryggði Grindavík sigurinn með löngum þristi sekúndubrotum fyrir leikslok eftir að Ólafur Ólafsson hafði stolið boltanum í vörninni og mögulega kannski sett annan fótinn örlítið út fyrir völlinn í leiðinni. En karfan var dæmd góð og gild og …
Herrakvöld körfuknattleiksdeildarinnar verður laugardaginn 12. nóvember
Hið margrómaða herrakvöld körfuknattleiksdeildar UMFG verður haldið laugardaginn 12. nóvember næstkomandi. Enn er margt á huldu um framkvæmd kvöldsins en eitthvað er þó byrjað að fréttast úr herbúðum skipuleggjanda, t.d. að veislustjóri verður Keflvíkingurinn Sævar Sævarsson. Nefndin hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Jæja Grindvískir karlmenn! Síðasti „viðburðurinn” áður en jólageðveikin ræðst á okkur er núna á laugardaginn kemur, 12. …