Unglingalandsmót

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Fjórtánda unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilstöðum um Verslunarmannhelgina

Ungmenna og íþróttasamband Austurlands er mótshaldari og stefnt er að því að halda glæsilegt mót við góðar aðstæður.

Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni.

Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu. Keppendur greiða eitt mótsgjald, kr. 6.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum.  Athugið að UMFG greiðir niður helmingin af mótsgjaldinu fyrir íþróttaiðkenndur í Grindavík.

Glæsileg íþróttamannvirki eru til staðar á Egilsstöðum en Landsmót UMFÍ var haldið þar árið 2001 og töluverð uppbygging varð í kringum það mót. Íþróttaleikvangurinn er vel staðsettur í hjarta bæjarins. Sundlaug og íþróttahús er þar rétt við hliðina og öll önnur íþróttamannvirki í næsta nágrenni.

Tjaldstæði keppenda verður afskaplega vel staðsett og í göngufæri við keppnissvæðin.

Samhliða íþróttakeppninni verður fjölbreytt skemmtidagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna á daginn. Þar má nefna að skemmtidagskrá verður í Tjarnargarðinum alla daga. Sprelligosa- og Fjörkálfaklúbbar, leiktæki fyrir born og unglinga og gönguferðir með leiðsögn alla daga fyrir þá sem eldri eru. Þá verða fjölbreyttar kvöldvökur og síðan flugeldasýning á sunnudagskvöldið eins og venja er.

 

Skráning á mótið er í fullu gangi en hægt er að skrá sig hér