Tilkynning um óæskilega hegðun

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Ungmennafélag Grindavíkur leggur mikla áherslu á að allir iðkendur innan félagsins geti stundað íþróttina sína í öruggu umhverfi. Hér að neðan má finna upplýsingar um fræðslu og hvert er hægt að leita ef að grunur er um að öryggi iðkenda sé ógnað.

Ef þú telur þig verða vitni af hegðun eða samskiptum sem þú telur ógna öryggi einstaklings innan félagsins eða grunur leikur á að óæskileg hegðun eigi sér stað hvort sem hún sé í formi eineltis, samskiptavanda eða einhverskonar ofbeldis, er það skýr stefna UMFG að tekið sé á málinu strax.

Vakni grunur um óeðlilega hegðun þá er hægt að tilkynna það með formlegum hætti með tölvupósti á tilkynning@umfg.is. Starfshópur innan UMFG mun vinna málið áfram innan félagsins og reyna að leiða málið til lykta. Trúnaður ríkir um allar tilkynningar.

Nauðsynlegt er að vitneskja er að óeðlileg hegðun berist til þjálfara, yfirþjálfara og stjórnenda félagsins. Þjálfari og/eða sá starfsmaður sem fær vitneskju um óæskilega hegðun skal taka á málinu strax. Þjálfari byrjar á að hafa samband við yfirþjálfara sem vinnur málið áfram með stjórnendum félagsins og sérfræðingum Grindavíkurbæjar sé þess þörf. Þessir aðilar hafa samráð um viðbrögð og aðgerðir.

Tilkynning um kynferðisbrot eða annarskonar ofbeldi

UMFG er í góðu samstarfi við Æskulýðsvettvanginn í gegnum Ungmennafélag Íslands. Einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir óæskilegri hegðun (kynferðisbrot eða annarskonar ofbeldi) geta tilkynnt mál til fagráðs Æskulýðsvettvangsins. Öllum tilkynningum er tekið alvarlega og þeim komið í réttan farveg.

Í fagráðinu sitja alltaf tveir óháðir sérfræðingar sem hafa þekkingu, menntun og reynslu sem nýtist við meðferð kynferðisbrotamála og eineltismála. Í dag starfa lögfræðingur og sálfræðingur í fagráðinu. Framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins er einnig starfsmaður fagráðsins.

Hægt er að tilkynna mál til Æskulýðsvettvangsins hér.

Samskiptaráðgjafi Íþrótta- og Æskulýðsstarfs

Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og/eða æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Einnig eiga allir iðkendur; börn, unglingar og fullorðnir óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti að geta leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingar.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða einelti í sínu íþrótta- og æskulýðsstarfi eða eru ekki vissir og vilja fá ráðgjöf varðandi slík mál, geta haft samband við Sigurbjörgu með því að senda póst á sigurbjorg@dmg.is eða hringt í síma 839-9100.

Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu samskiptaráðgjafa.