Skráning í íþróttir UMFG hafin í Sportabler

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Skráning í íþróttir hjá deildum UMFG fyrir starfsárið 2022/2022 er hafin. Skráning fer fram í gegnum Sportabler líkt og undanfarin ár.

Árgjald í íþróttir hjá UMFG er 45.000 kr.- og getur hvert barn á aldrinum 6-18 ára stundað eins margar íþróttir og áhugi er til fyrir þessa fjárhæð á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. Stundi barn fleiri en eina íþróttagrein þá er greitt fyrir fyrstu íþróttagreinina og svo eru allar aðar íþróttagreinar fríar eftir það á hverja kennitölu. Hægt er að dreifa greiðslunum niður í 5 jafnar greiðslur eftir því sem hentar hverjum og einum.

Skráning fer fram hér: https://www.sportabler.com/shop/UMFG/

Komi upp vandamál er hægt að hafa samband við skrifstofu UMFG með tölvupósti á umfg@umfg.is