Skráning hafin í Leikjanámskeið UMFG

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Börnum í 1. – 3. bekk, fæddum 2014, 2015 og 2016 stendur til boða að sækja námskeið á vegum Ungmennafélags Grindavíkur í sumar. Um er að ræða svokölluð leikjanámskeið þar sem lögð er áhersla á fjölbreytni í leik og fræðslu. Á leikjanámskeiðunum er boðið upp á íþróttir, leiki, listir og fullt af skemmtilegum uppákomum sem tengjast mannlífinu í Grindavík. Farið verður í vettvangsferðir, sund og ótal margt fleira.

Námskeið verða fyrir og eftir hádegi frá mánudegi til fimmtudags.

Athugið að eingöngu er boðið upp á pláss hálfan daginn. Hámarksfjöldi barna á hverju námskeiði er 35 börn fyrir hádegi og 35 börn eftir hádegi, samtals 70 á dag. Skráning á námskeiðin fer fram í Sportabler og er skráning hafin.  Börn sem ekki fá pláss á leikjanámskeiðinu fara á biðlista. Hægt er að skrá barn á öll námskeiðin.

Skráning fer fram hér: https://www.sportabler.com/shop/umfg/namskeid

Hægt er að kaupa daggæslu milli kl. 8:00 og 9:00 áður en leikjanámskeiðin hefjast.

Gjaldskrá fyrir leikjanámskeið sumarið 2022 er eftirfarandi:
Eitt leikjanámskeið 5.000 kr.-
Tvö leikjanámskeið 9.000 kr.-
Daggæsla milli 8:00 og 9:00: 2.750 kr.

ATH. Ekki er hægt að skrá barn á tvö námskeið í sömu viku, þ.e. fyrir og eftir hádegi.

UMFG áskilur sér rétt til að fella niður námskeið verði ekki nægileg skráning á námskeið.

Umsjónamenn leikjanámskeiðanna í ár verða: Ása Björg Einarsdóttir & Dröfn Einardóttir

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2024:
Námskeið 1: 12. – 15. júní kl. 9:00 – 12:00 (4 dagar)
Námskeið 2: 12. – 15. júní kl. 13:00 – 16:00 (4 dagar)
Námskeið 3: 19. – 22. júní kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 4: 19. – 22. júní kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 5: 26. – 29. júní kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 6: 26. – 29. júní kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 7: 10. – 13. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 8: 10. – 13. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 9: 17. – 20. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 10: 17. – 10. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 11: 24. – 27. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 12: 24. – 27. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 13: 31. júlí – 3. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 14: 31. júlí – 3. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 15: 8. – 11. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 16: 8. – 11. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 17: 14. – 17. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 18: 14. – 17. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar)