Njarðvíkingurinn Daníel Guðni til liðs við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Daníel Guðni Guðmundsson semur til enda tímabilsins 2013-2014

Njarðvíkingurinn Daníel Guðni Guðmundsson hefur skrifað undir samning hjá Grindavík til eins og hálfs árs. Samningurinn rennur út í lok tímabilsins 2013-2014.

En Daníel fór út til Lund í Svíþjóð til þess að stunda mastersnám í íþróttafræðum. Skólagangan þar er þó ekki á enda en hann á eftir að skrifa lokaritgerð. Ætlar hann að skrifa hana hérna heima. Daníel spilaði síðast með Stjörnunni hér á landi en ólst hann upp spilandi hjá Njarðvík.