Leikjanámskeið UMFG 2021

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Börnum í 1. – 3. bekk, fæddum 2012, 2013 og 2014 stendur til boða að sækja námskeið á vegum Ungmennafélags Grindavíkur í sumar. Um er að ræða svokölluð leikjanámskeið þar sem lögð er áhersla á fjölbreytni í leik og fræðslu. Á leikjanámskeiðunum er boðið upp á íþróttir, leiki, listir og fullt af skemmtilegum uppákomum sem tengjast mannlífinu í Grindavík. Farið verður í vettvangsferðir, sund og ótal margt fleira.

Námskeið verða fyrir og eftir hádegi frá mánudegi til fimmtudags.

Athugið að eingöngu er boðið upp á pláss hálfan daginn. Hámarksfjöldi barna á hverju námskeiði er 35 börn fyrir hádegi og 35 börn eftir hádegi, samtals 70 á dag. Skráning á námskeiðin fer fram í Sportabler og hefst í hádeginu miðvikudaginn 26. maí.  Börn sem ekki fá pláss á leikjanámskeiðinu fara á biðlista. Hægt er að skrá barn á öll námskeiðin.

Hægt er að kaupa daggæslu milli kl. 8:00 og 9:00 áður en leikjanámskeiðin hefjast.

Gjaldskrá fyrir leikjanámskeið sumarið 2021 er eftirfarandi:
Eitt leikjanámskeið 5.000 kr.-
Tvö leikjanámskeið 9.000 kr.-
Daggæsla milli 8:00 og 9:00: 2.750 kr.

ATH. Ekki er hægt að skrá barn á tvö námskeið í sömu viku, þ.e. fyrir og eftir hádegi.

UMFG áskilur sér rétt til að fella niður námskeið verði ekki nægileg skráning á námskeið.

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2021:
Námskeið 1: 14. – 18. júní kl. 9:00 – 12:00 (4 dagar) *Frí 17. júní og föstudagur bætist við.
Námskeið 2: 14. – 18. júní kl. 13:00 – 16:00 (4 dagar) *Frí 17. júní og föstudagur bætist við.
Námskeið 3: 21. – 24. júní kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 4: 21. – 24. júní kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 5: 28. júní – 1. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 6: 28. júní – 1. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 7: 5. – 8. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 8: 5. – 8. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 9: 12. – 15. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 10: 12. – 15. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 11: 26. – 29. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 12: 26. – 29. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 13: 3. – 6. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 14: 3. – 6. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 15: 9. – 12. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 16: 9. – 12. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar)