Kvennahlaup ÍSÍ

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 4.júní.

Hlaupið verður frá sundlaug Grindavíkur og byrjar það klukkan 11:00.

Þema hlaupsins í ár er “Hreyfing allt lífið”. Með því vill ÍSÍ leggja áherslu á mikilvægi hreyfingar fyrir fólk á öllum aldri. Með daglegri hreyfingu leggjum við grunn að heilbrigðri sál í hraustum líkama og aukum þannig lífsgæði okkar til muna.

Þemað endurspeglast líka í eðli Kvennahlaupsins. Þar koma saman konur á öllum aldri, um allt land og jafnvel allan heim og stunda holla hreyfingu. Öll ferðalög hefjast á fyrsta skrefinu og fjölmargar konur hafa án efa tekið upp reglulega hreyfingu í kjölfar þess að hafa tekið þátt í Kvennahlaupinu.

Forvarnir eru stór þáttur í hlutverki Sjóvár. Stuðningur og samstarf við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands um Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er mikilvægur þáttur í forvarnastarfi félagsins. Við hvetjum sem flestar konur að taka þátt í Kvennahlaupinu og stuðla þannig að heilbrigðari lífsháttum.