Íþróttastarf hefst á ný á fimmtudag

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Íþróttastarf hjá deildum Ungmennafélags Grindavíkur hefst á ný á fimmtudag eftir nokkura vikna hlé. Íþróttaæfingar barna- og fullorðinna með eða án snertingar verða heimilar.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur iðkendur og munu allar deildir hefja starf sitt skv. stundaskrá. Allar æfingar verða skráðar inn í Sportabler.

Fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20, samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi fimmtudaginn 15. apríl. Sundlaugar og skíðasvæði geta opnað aftur og starfsemi líkamsræktarstöðva getur hafist á ný en með takmörkunum.

Á sama tíma og ný reglugerð tekur gildi um tilslakanir á sóttvarnarreglum breytast nálægðarmörk úr 2 metrum í 1 metra í skólum.

Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar sóttvarnarreglur á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Gert er ráð fyrir að reglurnar gildi í þrjár vikur.

Fram kemur á frétt um málið á vefsíðu heilbrigðisráðuneytis að í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að frá því að aðgerðir á landamærum voru hertar síðast, m.a. með kröfu um sýnatöku hjá börnum og ferðamönnum með vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu og auknu eftirliti með þeim sem dveljast í sóttkví eða einangrun, hafi daglegum smitum fækkað. Þannig hafi tekist að koma í veg fyrir stærri hópsýkingu eða útbreiðslu smita. Sóttvarnalæknir bendir þó á að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr samfélaginu. Áfram þurfi að viðhafa fyllstu aðgát vegna mikillar útbreiðslu í nálægum löndum og nýrra afbrigða veirunnar. Ýtrasta varkárni á landamærunum sé lykillinn á tilslökunum innanlands.

Breytingarnar í hnotskurn

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annarra skilyrða.
  • Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum heimilar, án áhorfenda. Hámarksfjöldi fullorðinna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu takmörkunum og í skólastarfi.
  • Skíðasvæðum heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis.
  • Sviðlistir, þar með talið kórastarf, heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða.
  • Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
  • Öllum verslunum heimilt að taka á móti 5 viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfsmanna í sama rými og viðskiptavinir.
  • Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum heimilt að hafa opið með sömu skilyrðum og veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar.
  • Verklegt ökunám og flugnám með kennara heimilt.