Námskeið íþróttaskóla UMFG (fyrir börn á leikskólaaldri) hefst Sunnudaginn 13.janúar og stendur yfir í fimm skipti.
Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Grindavíkur og hefst kl 10:00-10:40 á Sunnudögum.
Skráningar fara fram á facebook síðunni okkar (íþróttaskóli UMFG) eða með því að senda tölvupóst á netfangið petrunella@grindavik.is. Námskeiðið verður haldið ef næg þáttaka næst 😉
Námskeiðið kostar 3,000 kr.
Skemmtilegt námskeið fyrir börn á leikskólaaldri sem bætir úthald, styrk og snerpu.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Petrúnella Skúladóttir íþróttafræðingur.