Hvatningarverðlaun 2012

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Á hátíðardagskrá vegna kjörs á íþróttamanni og konur Grindavíkur voru veitt hvatningarverðlaun til yngri iðkennda og verðlaunahafar ársins fengu einnig viðurkenningu.

Körfuknattleikur 

Julia Sicat.
Júlía hefur næstum alla eiginleika sem fyrirmyndar íþróttamaður þarf að búa yfir. Hún er mjög
samviskusöm og dugleg í sínum æfingum og mætir alltaf á allar æfingar,bæði liðsæfingar og þær
aukaæfingar sem í boði eru. Júlía var lykilmaður í 10.flokks liði Grindavíkur sem spilaði til úrslita
um bæði Íslands og Bikarmeistara titilinn á síðasta tímabili. Júlía er byrjuð að banka á dyrnar hjá
meistaraflokknum og hefur fengið nú þegar nokkur tækifæri þrátt fyrir ungan aldur. Júlía er einnig
mikil fyrirmynd utan vallar, mjög kurteis og hjálpsöm fyrir félagið sitt. Júlía leggur sig alltaf alla fram
og geta ungir iðkendur lært mikið af Júlíu, bæði innan vallar sem utan. Júlía er því sönn fyrirmynd fyrir
ungu kynslóðina.

Hinrik Guðbjartsson
Hinrik er mjög áhugasamur og duglegur iðkandi, Hinrik hefur æft og spilað með meistaraflokki
félagsins í 2 ár þrátt fyrir ungan aldur. Í dag æfir hann með meistaraflokki sem og spilar með
11.flokki og drengjaflokki. Hinrik mætir alltaf á allar þær æfingar sem í boði eru og hefur stundað
þær aukaæfingar sem í boði eru hjá félaginu, og sem dæmi þá fór hann 2-3 sinnum í viku fyrir skóla í
vetur í klukkutíma til að bæta sinn leik. Hinrik er lærdómsfús leikmaður og alltaf tilbúinn að hlusta á
leiðsögn, margir ungir iðkendur mættu taka sér það til fyrirmyndar því það er leiðin að árangri. Hinrik
er einnig mikil fyrirmynd utan vallar, hann er mjög kurteis,kemur vel fram og er félagi sínu til mikils
sóma.

Fimleikadeild.
Karólína Ívarsdóttir.
Hún hefur sýnt miklar framfarir og komið vel undirbúin á æfingar. Er góð fyrirmynd og verið sjálfri sér
og okkur til mikils sóma.

Sund.
Gil Fernanders. Hann hefur á árinu náð undraveðum árangri í bæði bringusundi og skriðsundi.
Hann var í 4 sæti í 100m bringu á AMÍ 12 ára og yngri og 5 sæti í 100 m skrið á AMÍ. Gil hefur verið
einstaklega duglegur á æfingum og staðið sig mjög vel á öllum mótum sem hann

Júdó.
Hvatningarverðlaun fyrir Judo hljóta tvíburabræðurnir Adam Þór og Róbert Örn Latowski.
Þeir mæta vel, eru mjög duglegir, sína mikinn áhuga og hafa tekið miklum framförum á þeim tíma
sem þeir hafa verið að æfa judo. Þeir bræður eru öðrum til fyrirmyndar með dugnaði sínum og ákafa.

Knattspyrna.
Guðný Eva Birgisdóttir.
Guðný Eva er frábær liðsfélagi og góður liðsmaður. Hún er fjölhæfur leikmaður sem að getur spilað
flestar stöður á vellinum en hún spilar oftast sem varnarmaður. Þar nýtir hún styrk sinn, hraða og
leikskilning í að stöðva sóknir andstæðingana. Guðný Eva hefur verið á landsliðsæfingum fyrir U-17
kvenna og staðið sig mjög vel.

Guðný Eva er stundvís og samviskusöm og mætir á allar æfingar. Hún leggur sig alltaf 100% fram í því
sem hún gerir og er það eitthvað sem á eftir að fleyta henni gríðarlega langt í því sem að hún leggur
fyrir sig. Hún er frábær fyrirmynd fyrir börn og unglinga sem að vilja stunda íþróttir og ná langt í sinni
íþrótt.

Mótorcross
Gyða Dögg Heiðarsdóttir.
Var valin nýliði ársins í kvennaflokki aðeins 13 ára gömul á lokahófi Mótorhjóla- og
snjósleðaíþróttasambandi Íslands nú í haust. Keppti fyrir UMFG á unglingalandsmótinu á Selfossi í
sumar og sigraði en hún keppir í flokki 85cc.

Taekwondó: Gísli Þráinn Þorsteinsson 

Gísli vann til gull og silfurverðlauna á öðru bikarmóti ársins og tvennra gullverðlauna á þriðja
bikarmótinu þ.e. bæði í bardaga og tækni. Gísli vann íslandsmeistaratiltilinn í sínum flokki í formi
og vann bronsverðlaun á íslandsmótinu í bardaga. Gísli hefur bætt sig mikið að undanförnu enda
ótrúlega góður árangur að sigra í báðum keppnisgreinum tawekwondo. Gísli mætir vel á æfingar og
leggur mikið á sig og er svo sannarlega að uppskera því sem hann hefur sáð. Gísli Þráinn stefnir á að
taka svartbeltispróf á komandi ári.

 

9. flokkur karla varð Íslandsmeistarar á árinu
Aðalsteinn Pétursson
Aron Friðriksson
Árni Vignisson
Hilmir Kristjánsson
Hlynur Ægir
Guðmundsson
Jónas Daníel Þórisson
Kristófer Breki Gylfason
Kristófer Rúnar Ólafsson
Patrick Dean Horne
Rúnar Örn Ingvason
Stefán Örn Kristjánsson
Marínó Helgason
Ingvi Þór Guðmundsson
Sverrir Týr Sigurðsson

Þjálfarar þeirra eru


Guðmundur Bragason og  Stefanía S. Jónsdóttir

Meistaraflokkur karla varð einnig íslandsmeistarar og fengu þeir viðurkenninguÍslandsmeistarar 2012
Þorleifur Ólafsson
Páll Axel Vilbergsson
Ármann Vilbergsson
Þorsteinn Finnbogason
Jóhann Árni Ólafsson
Sigurður Gunnar Þorsteinsson
Björn Steinar Brynjólfsson
Ómar Sævarsson

Ólafur Ólafsson
Einar Ómar Eyjólfsson
Giordan Watson
Ryan Pettinella
J‘Nathan Bullock
Jón Axel Guðmundsson
Hinrik Guðbjartsson

Þjálfarar: Helgi Jónas Guðfinnsson og Jóhann Ólafsson
Sjúkraþjálfari: Sreten Karimanovic

Eftirfarandi urðu meistarar í sinni grein:

Sigurpáll Albertsson Íslandsmeistari 2012 Judó U-20 ára – 90kg

Björn Lúkas Haraldsson Íslandsmeistari 2012 Judó U-20 ára – 81kg

Ylfa Rán Erlendsdóttir Íslandsmeistari 2012 Taekwondó Ungl.fl.

Gísli Þráinn Þorsteinsson Íslandsmeistari 2012 Taekwondó Ungl.fl.

Aron Snær Friðriksson
Kristófer Rúnar Ólafsson
Aðalsteinn Pétursson

spiluðu allir sína fyrsta landsleiki á árinu.