Hertari aðgerðir vegna COVID-19

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Ríkisstjórn Íslands hefur boðað hertari aðgerðir til að sporna gegn útbreiðslu COVID-19. Aðgerðir taka gildi 31. júlí. Fram kom í máli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag að 39 smit séu nú staðfest og séu það 10 smit sem hafi bæst við á milli daga. Nú eru 215 manns í sóttkví og munu fleiri bætast við. Af þeim sökum þurfi að herða aðgerðir til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu smita.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, biðlaði á fundinum til íþróttahreyfingarinnar að öllum íþrótta­mót­um og keppn­um full­orðinna verði frestað í tíu daga eða þar til 10. ág­úst.

Yfirvöld munu fylgjast grannt með stöðu mála og meta árangur aðgerðanna.

Aðgerðirnar í hnotskurn:

  • Fjöldatakmörkun miðast við 100 einstaklinga í stað 500 áður. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin.
  • Breyting á fjöldatakmörkunum nú og fleiri aðgerðir munu gilda í tvær vikur.
  • Tveggja metra nándarregla viðhöfð í allri starfsemi. Hún er ekki lengur valkvæð heldur skyldubundin.
  • Þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra nándarreglu verður kraf­ist notk­un­ar and­lits­gríma. Þetta á sem dæmi við um almenningssamgöngur, innanlandsflug, farþegaferjur og starfsemi, s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur.
  • Tvö­föld sýna­taka verður við landa­mær­in, bæði við komu og síðan á degi fjög­ur til sex ef fyrra sýnið reyn­ist nei­kvætt.
  • Verslanir, opinberar byggingar og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi tryggi aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd, sinni vel þrifum og sótthreinsun yfirborða eins oft og unnt er.
  • Sundlaugar og veitingastaðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis.
  • Sóttvarnalæknir leggur til að starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað, s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.

Leikjum Grindavíkur í meistaraflokkum karla og kvenna sem fara áttu fram á næstu dögum verður frestað. Einnig leikjum hjá eldri aldursflokkum hjá. Nánari upplýsingar munu liggja fyrir strax eftir verslunarmannahelgi.