Æfingagjöld og skráning í íþróttir hjá UMFG

Ungmennafélag Grindavíkur UMFG

Æfingagjöld og skráning í íþróttir hjá UMFG

Nú hefur verið ákveðið að Ungmennafélag Grindavíkur innheimti æfingagjöld fyrir skólabörn fædd árið 1995-2005. Sjá http://www.umfg.is/umfg/aefingargjold  

Ákveðið hefur verið að æfingagjaldið verði kr 20.000.- á barn fyrir árið 2011 og má barnið æfa eins margar íþróttir og það vill. Æfingagjöldin eru fyrir tímabilið janúar – desember ár hvert.

Ungmennafélag Grindavíkur býður uppá:

·         Fimleika

·         Judo

·         Knattspyrnu

·         Körfuknattleik

·         Sund

·         Taekwondo

Ekki verða veittir neinir afslættir af æfingagjöldum þar sem þau eru mikið niðurgreidd.

Starfsmaður UMFG tekur við greiðslum á æfingagjöldum í húsi UMFG ( bláa útistofa við grunnskólann) mánudaga og fimmtudaga milli kl:14-18, einnig er hægt að leggja inn á reikning UMFG 0143-26-924 kt:  420284-0129 og skrá nafn barnsins í skýringu. Hægt er að hafa samband við starfsmann á þessum dögum í síma 426-7775 á sama tíma og opið er og einnig hægt að semja um greiðslur og gera samning við starfsmann um greiðsludreifingu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á umfg@umfg.is