Sumarfjarnám 2013 þjálfaramenntun 1. stigs ÍSÍ

Ungmennafélag GrindavíkurUMFG

Sumarfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ mun hefjast mánudaginn  24. júní nk. og tekur átta vikur.  Athugið að síðasti dagur til að skrá sig er í dag

Um er að ræða samtals 60  kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.- Allt efni er innifalið í gjaldinu s.s. bókin Þjálffræði sem send er heim til  þátttakenda ásamt öðru efni. Námið er almennur hluti
þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum  landsins. Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur!

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að  vera lokið fyrir fimmtudaginn 20. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til  þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Mikil þátttaka hefur verið í þjálfaramenntun ÍSÍ í fjarnámi enda eru  vaxandi kröfur gerðar til íþróttaþjálfara um menntun og fagmennsku í  starfi.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur  Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is
Með bestu kveðju,
Viðar Sigurjónsson
Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri
Þjálfaramenntun ÍSÍ – Fyrirmyndarfélag ÍSÍ